Morgunblaðið skýrir frá þessu. Haft er eftir Ragnheiði Ósk Erlendsdóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, að einnig hafi verið opið fyrir bólusetningu á Suðurlandsbraut þar sem fólk hefur getað pantað sér tíma í gegnum heilsuveru. Hún sagði að yfirleitt væri verið að bólusetja um 1.000 manns á dag, þar með eru kennarar taldir.
Í næstu viku, frá 16. til 19. ágúst, færast bólusetningar aftur yfir í Laugardalshöllina en þá munu allir þeir sem hafa fengið bóluefnið frá Janssen fá örvunarskammt eða um 32.000 manns. „Þá verða allir kallaðir út aftur og við verðum með stóra bólusetningardaga. Þeir fá annaðhvort Pfizer eða Moderna. Við tökum það jöfnum höndum eftir því hvenær er næsta fyrning á næsta bóluefni,“ er haft eftir Ragnheiði.
23. og 24. ágúst verður boðið upp á bólusetningu fyrir 12 til 15 ára börn. „Það miðast við afmælisdaginn hvenær fólk á að mæta. Við erum búin að tékka á öllum sveitarfélögunum og skólayfirvöldum varðandi þessar dagsetningar og þau telja að þær henti vel svo við munum keyra á þær,“ sagði Ragnheiður.
Hún sagði að allar upplýsingar um tímasetningar og annað tengt bólusetningu barna sé að finna á vef heilsugæslunnar. Börnin verða ekki boðuð í bólusetningu, foreldrar þeirra verða að skoða hvenær boðið er upp á bólusetningu fyrir þá aldurshópa sem börn þeirra tilheyra. Ekki verður tekið á móti börnum í bólusetningu nema þau séu í fylgd með fullorðnum eða forráðamönnum.