Ráðast þarf í umfangsmiklar endurbætur á húsnæði Fossvogsskóla til að greiða úr þrálátum raka- og mygluvanda sem ítrekað hefur komið upp í skólanum og haft neikvæð áhrif á heilsu nemenda. Þetta kemur fram í úttekt Eflu á húsnæðinu en ný skýrsla um ástand húsnæðisins hefur litið dagsins ljós.
Húsnæði Fossvogsskóla hefur verið til töluverða vandræða undanfarin misseri eftir að nemendur fóru að greinast með heilsufarsvandamál sem rakin hafa verið til rakaskemmda og myglugróa í skólanum.
Þrátt fyrir endurbætur sem borgin lét vinna á húsnæðinu hélt mygla áfram að gera vart við sig og að ending var fallist á að hætta kennslu í skólanum þar til úttekt hafi farið fram á húsakostinum, eftir að foreldrar höfðu ítrekað skorað á borgaryfirvöld að bregðast við ástandinu til að tryggja heilsu og öryggi nemenda.
Foreldrafélag og skólaráð Fossvogsskóla eru talin hafa unnið mikið þrekvirki og staðið í fremstu víglínu í baráttunni fyrir úrbótum og urðu til þess að verkfræðistofan Efla var fengin til að gera úttekt á skólanum og skila tillögum að úrbótum.
Nú liggur skýrsla EFLU fyrir og má segja að húsnæðið fái þar svíðandi falleinkunn. Nokkur atriði sem koma þar fram eru:
Eins er tekið fram að í kjallara einnar byggingarinnar, þar sem finna má eldhús, matsal og aðstöðu fyrir frístund, sé óvenjulegt ástand uppi. Þar sé skólpdæla óeðlilega nærri rými þar sem vinnsla og geymsla matvæla eigi sér stað. Í skýrslunni segir:
„Segja má að kjallarinn sé tvískiptur. Neðst er matsalur, eldhús, aðstaða fyrir frístund og geymslur. Þegar farið er inn í eldhúsið frá stigahúsi er gengið í gegnum ræstigang. Frá þessum gangi, sem er 6,5m², er aðgengi inn í búr, salerni fyrir starfsfólk og rými fyrir dælubrunn.
Þegar hurðin inn í dælurýmið var opnuð gaus upp megn skólplykt þó þarna ætti samkvæmt öllu einungis að vera jarðvatn enda um opinn brunn að ræða. Við nánari athugun kom í ljós að tvær skólpdælur eru staðsettar í rýminu, önnur á gólfi við hliðina á dælubrunni, og hin ofan við vatnsyfirborð brunnsins.
Þar hafa lagnir farið í sundur og flaut skólp/fita ofan á vatninu og var dælan útötuð óhreinindum. Þessi staðsetning á dælubrunni og ástand skólpdælu er afar óheppileg þar sem vinnsla og geymsla matvæla á sér stað í næsta rými.”
Í úttektinni er farið yfir möguleikann á því að rífa hreinlega skólann, en sú leið er þó talin kostnaðarsamari heldur en að ráðast í umfangsmiklar endurbætur. Meðal þeirra fjölmörgu úrbóta sem lagðar eru til:
Klæða og einangra eldri húsin að utan og gera vatnsþétt
Skipta um glugga og útihurðir á tveimur byggingum
Skipta um innréttingar
Endurnýja gólfefni
Fjarlægja múr og einangrun af útveggjum
Skipta um loftræstikerfi í eldri húsum og uppfæra m.v. gildandi reglur
Færa brunna og dælur út fyrir húsin
Fjarlægja asbest