Í tilkynningu frá lögreglunni segir að Markús hafi neitað sök og hafi áfrýjað dómnum samstundis til Eystri Landsréttar. Auk þess að vera dæmdur í fangelsi var Markúsi vísað úr landi í Danmörku fyrir fullt og allt að afplánun dómsins lokinni og má aldrei aftur koma til landsins.
Nauðganirnar áttu sér stað á árunum 2006-2010 þegar Markús hafði umgengni við dóttur sína. Ofbeldið átti sér stað bæði á Íslandi og í sumarhúsi á Fjóni.
Dóttirin hefur ekki séð Markús síðan 2010.
Nyborg sveitarfélagið tilkynnti um málið til lögreglunnar 2018 og hófst rannsókn þá. Hún leiddi í ljós að Markús væri líklega á Spáni og þann 2. júní 2020 var hann úrskurðaður í gæsluvarðhald að honum fjarstöddum. Í kjölfarið var hægt að gefa út alþjóðlega handtökuskipun á hendur honum. 17. október síðastliðinn var hann handtekinn í Alicante á Spáni og hálfum öðrum mánuði síðar var hann framseldur til Danmerkur þar sem hann hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan.
Jacob Thaarup, saksóknari, sagði að málið væri á margan hátt óvenjulegt. „Hér er um að ræða fjölda grófa ofbeldisverka sem beindust gegn dóttur hins ákærða. Þetta er líka mál þar sem framburður vitna skipti gríðarlega miklu máli því svo langur tími leið frá ofbeldinu og fram að kærunni að engin sönnunargögn voru til staðar,“ sagði hann.
Thaarup sagði að sú staðreynd að stúlkan trúði tveimur vinkonum sínum snemma frá því sem gerðist hafi skipt sköpum hvað varðar möguleika lögreglunnar á að gefa út ákæru á hendur Markúsi og fá hann dæmdan.
Auk nauðgana var Markús einnig dæmdur fyrir að hafa hótað dóttur sinni ofbeldi og að hafa beitt hana ofbeldi. Hann sparkaði í hana og sló. Dómstólinn komst þó að þeirri niðurstöðu að ekki hafi verið um misþyrmingar að ræða út frá lagalegu sjónarmiði, heldur hafi verið um ofbeldi að ræða sem félli undir vægari lagaákvæði og því væri sá hluti ákærunnar fyrndur.
DV skýrði frá máli hans í lok maí.