Flugfélagið PLAY tilkynnti rétt í þessu að Salzburg yrði nýr áfangastaður. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Fram kemur að Salzburg, sem er fjórða stærsta borg Austurríkis, verði vetraráfangastaður. Um er að ræða sögufræga borg, en miðað við tilkynninguna verður höfðað til skíðafólks. Henni lýst á þennan veg:
„Mozart-kúlur, Söngvaseiður og heimsins bestu skíðasvæði. Það er ekki hægt að láta sér leiðast í Salzburg, nýjum vetraráfangastað PLAY. Borgin sjálf er guðdómlega falleg en það eru stórkostleg skíðasvæðin í stórbrotnum Ölpunum steinsnar frá borginni sem eru helsta aðdráttaraflið yfir veturinn. Hér finna allir brekkur við sitt hæfi, frábæra kennara, góðan búnað, sjarmerandi gistingu og ógleymanlegt útsýni.“
Þessa stundina eru átta áfangastaðir auglýstir á PLAY, sem eru Alicante, Barcelona, Berlín, Kaupmannahöfn, Ísland, London, París og Tenerife. Hægt er að búast við því að Salzburg bætist við á næstu dögum.