fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fréttir

Hefjum störf átakið gagnrýnt – Verkferlar Vinnumálastofnunar sagðir skerða virkni þess

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 8. júní 2021 07:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samtök atvinnulífsins, SA, og Samtök ferðaþjónustunnar, SAF, segja að verkferlum Vinnumálastofnunar sem snúa að átakinu Hefjum störf sé ábótavant og að þeir skerði virkni úrræðisins. Þetta kemur fram í minnisblaði samtakanna til fjárlaganefndar Alþingis varðandi fjáraukalög og horfur á vinnumarkaði.

Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Fram kemur að í minnisblaðinu segi að atvinnurekendur hafi vakið athygli á að ráðningarferlið í átakinu sé seinvirkt. Fjölmörg fyrirtæki hafi boðið fólki í atvinnuviðtöl en það hafi reynst vera farið af atvinnuleysisskrá, meðal annars vegna þess að það hafi verið búið að ráða sig í vinnu annars staðar.

Markmiðið með átakinu er að skapa tímabundin störf í samvinnu við atvinnulífið, opinberar stofnanir, sveitarfélög og félagasamtök. Meðal annars er boðið upp á ráðningarstyrki til atvinnurekenda sem ráða fólk til starfa í gegnum átakið. „Þá hafa einhver fyrirtæki ráðið inn starfsmenn í gegnum átakið en fengið synjun eftir á frá Vinnumálastofnun þar sem stofnunin hafði ekki tryggt frá upphafi að starfsmenn uppfylltu skilyrði ráðningarstyrks,“ segir í minnisblaðinu og er þetta sagt geta valdið fyrirtækjum og starfsfólki óþægindum og jafnvel uppsögn.

Eftirspurn eftir ráðningarstyrkjum er sögð hafa verið ansi mikil að undanförnu en þann 3. júní, daginn sem minnisblaðið er dagsett, var búið að skrá um 9.700 störf í átakið en aðeins hafði tekist að ráða í 2.700 störf.

Þegar Fréttablaðið leitaði viðbragða hjá Unni Sverrisdóttur, forstjóra Vinnumálastofnunar, vildi hún ekki tjá sig um þessa gagnrýni en sagði að skoða þurfi ferla stofnunarinnar til að sjá hversu mörg mál er um að ræða og fleiri atriði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður ekki Coda Terminal verkefnið við Vellina – Þyrfti aðkomu minnihlutans til að koma málinu í gegn

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður ekki Coda Terminal verkefnið við Vellina – Þyrfti aðkomu minnihlutans til að koma málinu í gegn
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Líkfundur á Tenerife í tengslum við leitina að Jay Slater

Líkfundur á Tenerife í tengslum við leitina að Jay Slater
Fréttir
Í gær

Trump í fyrsta viðtalinu eftir árásina – „Ég á að vera dauður“

Trump í fyrsta viðtalinu eftir árásina – „Ég á að vera dauður“
Fréttir
Í gær

Safnað fyrir fjölskyldu Viðars – „Setti mig og börnin okkar alltaf í fyrsta sæti“

Safnað fyrir fjölskyldu Viðars – „Setti mig og börnin okkar alltaf í fyrsta sæti“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikur í hitabylgju – Gleymdi tveggja ára dóttur sinni úti í bíl með hræðilegum afleiðingum

Harmleikur í hitabylgju – Gleymdi tveggja ára dóttur sinni úti í bíl með hræðilegum afleiðingum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðrún ætlar ekki að flytja inn í Biskupsgarð – Agnes flytur út og glæsihýsið verður selt

Guðrún ætlar ekki að flytja inn í Biskupsgarð – Agnes flytur út og glæsihýsið verður selt
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðmundur Ingi segir verið að hafa almenning að fíflum

Guðmundur Ingi segir verið að hafa almenning að fíflum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fleiri Loga töskur dúkka upp – „Hvað er í gangi?“

Fleiri Loga töskur dúkka upp – „Hvað er í gangi?“