Tónlistarmaðurinn Auður hefur verið mikið í umræðunni í kjölfar fréttaflutnings um ásakanir um ofbeldi af hans hálfu. Bubbi Morthens er einn þeirra sem hefur tekið þátt í umræðunni en Auður átti að spila með Bubba á tónleikum þann 16. júní næstkomandi.
Sjá meira: Þjóðleikhúsið með ásakanir á hendur Auði til skoðunar
Fyrr í dag sagði umboðsmaður Bubba, Ísólfur Haraldsson, í samtali við DV að Auður væri að spila á tónleikunum í næstu viku. Það er þó ekki lengur raunin samkvæmt færslu sem Bubbi birti sjálfur á Twitter-síðu sinni í kvöld en þar segir Bubbi að Auður verði ekki með.
Fyrir þá sem hafa ekki séð það þá verður Auður ekki með á tónleikum mínum 16 júní
— Bubbi Morthens (@BubbiMorthens) June 7, 2021
Sjá meira: Auður opnar sig um ásakanirnar og viðurkennir að hafa farið yfir mörk
Bubbi hefur tjáð sig í fleiri færslum á Twitter um mál Auðs. Hann segir í einni færslu að engin vandamál verði leyst án samtals og í annarri vitnar hann í færslu Sólborgar Guðbrandsdóttur, fyrirlesara og aktívista.
Við leysum engin vandamál án samtals ❤️🙏
— Bubbi Morthens (@BubbiMorthens) June 7, 2021
Mig langar að loka minni umræðu um Auð hér í kvöld með því að endur birta tíst eftir Sólborgu Guðbrands við þurfum samtal ❤️❤️❤️ pic.twitter.com/Ur1oe7D6u1
— Bubbi Morthens (@BubbiMorthens) June 7, 2021
Sólborg hefur tjáð sig um notkun Bubba á færslunni sinni en hún gerir það í annarri færslu sem má sjá hér fyrir neðan.
Þetta skrifaði ég fyrir tæpum mánuði í miðri #MeToo bylgju vegna þess að ég upplifði hræðslu frá gaurum að tjá sig. Ég meinti EKKI að kerfisbundið vandamál þýddi að einstaka gerendur þyrftu ekki að axla ábyrgð á gjörðum sínum. Fokk ofbeldi, alltaf. https://t.co/Zti4tEfKsE
— Sólborg Guðbrands (@solborgg) June 7, 2021
Bubbi er mikill aðdáandi tónlistar Auðs. Hann talaði til að mynda um Auð á Þorláksmessutónleikum sínum árið 2019 og hrósaði honum þar. „Mér finnst þetta besti tónlistarmaðurinn sem hefur komið fram á Íslandi í áratugi. Hann heitir Auður og og hann er hérna með okkur í kvöld,“ sagði Bubbi á tónleikunum en Vísir fjallaði um augnablikið fyrr á árinu.
„Hann er gífurlega flottur textahöfundur, geggjaður lagahöfundur, geggjaður pródúsent og geggjaður gítarleikari. Þá er ég búinn að mæra uppáhalds tónlistarmanninn í kvöld.“