Fyrr í mánuðinum vakti auglýsing í Morgunblaðinu mikla athygli. Um var að ræða auglýsingu þar sem fólk var beðið um að tilkynna um aukaverkanir vegna bólusetningar fyrir Covid-19. Auglýsingin var ómerkt og við fyrstu sýn virtist hún koma frá einhverri opinberri stofnun. Enda leið ekki langur tími þar til Lyfjastofnun steig fram og benti á að auglýsingin væri ekki á þeirra vegum.
Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, gagnrýndi auglýsinguna harðlega og sagði að það væri grafalvarlegt að í henni hafi birst upplýsingar um aukaverkanir sem eru óstaðfestar og jafnvel kolrangar. Þá voru leiðbeiningar um tilkynningu aukaverkana einnig alrangar. Þetta kom fram í frétt mbl.is vegna málsins.
Það var fyrirtækið Bjuti ehf. sem birti auglýsinguna í Morgunblaðinu eigandi fyrirtækisins er auðkonan Vilborg Björk Hjaltested. Rekja má auðæfi Vilborgar til Vatnsenda en þar bjó einmitt bróðir Vilborgar, auðmaðurinn Þorsteinn Hjaltested. Í umfjöllun DV frá árinu 2013 um auðmenn í Kópavogi var fjallað um Vilborgu. „Vilborg er lífeindafræðingur með sýkla- og veirufræði sem sérgrein en hún útskrifaðist frá Tækniskóla Íslands árið 1986. Hún starfar sem heilsumarkþjálfi,“ segir um Vilborgu í umfjölluninni.
Stígur fram undir fullu nafni
Vilborg hefur nú auglýst aftur í Morgunblaðinu. Í dag birtist auglýsing sem er afar svipuð þeirri sem birtist fyrr í mánuðinum. Það sem er þó ólíkt með auglýsingunum er að í nýju auglýsingunni stígur Vilborg fram undir fullu nafni. „Við erum öll almannavarnir, ég líka, Vilborg Hjaltested, kostandi auglýsingarinnar,“ segir í auglýsingunni en fyrir ofan það má sjá spurningar sem Vilborg vill að Þórólfur Guðnason svari opinberlega.
„Í ljósi þess að tilkynntar hafa verið 89 alvarlegar aukaverkanir skorum við á sóttvarnalækni að svara opinberlega eftirfarandi spurningum.
Er eitthvað af tilkynntum alvarlegum aukaverkunum hjá barnshafandi konum? EF svo er, hvaða aukaverkanir?
Fá barnshafandi konur og fólk með undirliggjandi sjúkdóma upplýsingar um áhættu og gagnsemi bólusetningarinnar? Ef svo, með hvaða hætti?
Hvaða ástæða liggur að baki því að bólusetja börn, sem eru ekki í áhættuhópi fyrir Covid 19?
Þýðir „skilyrt markaðsleyfi“ það að lyfið sé ekki fullrannsakað?“
Vilborg hefur ekki bara dreift áróðri sínum gegn bólusetningum í Morgunblaðinu heldur hefur hún einnig verið dugleg að viðra skoðanir sínar um málefnið á Facebook-síðu sinni. Þar hefur hún birt mikinn fjölda af færslum þar sem hún gagnrýnir bæði bólusetningar og sóttvarnaaðgerðir hér á landi.