fbpx
Þriðjudagur 30.júlí 2024
Fréttir

Ísland í 14. sæti á regnbogakorti ILGA-Europe

Bjarki Sigurðsson
Þriðjudaginn 18. maí 2021 09:57

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Útgáfa Regnbogakorts ILGA-Europe 2021 sýnir að Ísland stendur í stað milli ára með 54% atriða uppfyllt. ILGA-Europe, sem eru Evrópusamtök hinsegin hreyfinga, hafa frá árinu 2009 gefið út regnbogakort sitt sem ber saman lagaleg réttindi hinsegin fólks milli ríkja. Niðurstaða þess er sú að lítil sem engin framför hefur orðið á réttindum hinsegin fólks síðastliðið ár í þeim 49 ríkjum Evrópu og Mið-Asíu þar sem staðan er könnuð. Sker kortið í ár sig úr þar sem hingað til hefur verið hægt að mæla smástígar framfarir ár frá ári. Malta situr í efsta sæti listans 6. árið í röð og hefur uppfyllt alls 89% atriða. Ísland situr í 14. sæti listans, annað árið í röð, með 54% atriða uppfyllt.

Við mat ILGA-Europe í ár bættust tvö atriði sem kannað var hvort væru til staðar, möguleiki á breyttri kynskráningu fyrir börn og ungmenni undir lögaldri og lögfesting skyldu þess að bjóða upp á þriðja valmöguleika í kynskráningu, ætlað fyrir kynsegin fólk og oft kallað X-skráning. Uppfyllti Ísland bæði þessi nýju atriði og heldur þannig stöðu sinni frá fyrra ári.

Lög um kynrænt sjálfræði tóku fullt gildi í byrjun árs og eru mikil réttarbót fyrir trans og intersex fólk sem mega nú sjálf ráða kynskráningu sinni og nafni í Þjóðskrá. Þá setja lögin bann á ónauðsynleg og óafturkræf inngrip í líkama intersex barna sem hingað til hefur mátt gera án þeirra samþykkis. Samkvæmt ILGA-Europe er Ísland eina landið sem sýnir framför í málefnum intersex og trans fólks milli ára, en löggjöfin er varðar intersex málin telst þó ekki nægilega víðtæk til þess að Ísland fái stig fyrir að þessu sinni og því er þar ennþá tækifæri til bætinga.

Áskorun til stjórnvalda

Samtökin ‘78 skora á stjórnvöld að halda áfram að vinna að réttarbótum fyrir hinsegin fólk með regnbogakort ILGA-Europe sem leiðarvísi.

„Samtökin ‘78 sjá fyrir sér að Ísland sitji í efsta sæti listans eftir fimm ár. Til þess að þetta geti orðið að veruleika þarf vilja og atbeini stjórnvalda. Lög um kynrænt sjálfræði marka tímamót í réttindum trans og intersex fólks en betur má ef duga skal,“ segir Þorbjörg Þorvaldsdóttir, formaður Samtakanna ‘78. „Næst viljum við beina sjónum okkar að baráttu fyrir heildstæðri löggjöf sem verndar hinsegin fólk gegn hatursglæpum og fyrir bættri stöðu hinsegin umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í þeim undirflokki Regnbogakortsins uppfyllir Ísland aðeins 17% atriða og augljóst er að það þarf að bæta úr þeim málaflokki. Við finnum þörfina líka í okkar daglega starfi.“

„Sem stendur hefur ekkert ríki uppfyllt öll atriði á lista ILGA-Europe og forystusætið í hinsegin jafnrétti á heimsvísu er þess vegna laust, en þangað á Ísland að stefna. Á síðustu árum hefur það orðið algengara að stjórnvöld ýmissa ríkja séu tilbúin að ala á andúð gegn hinsegin fólki í þeim tilgangi að reka fleyg milli samfélagshópa og skapa sjálfum sér vinsældir. Þeirra á meðal eru nánar samstarfsþjóðir Íslands og því mikilvægt að að við tökum skýra afstöðu með frelsi og mannréttindum. Samtökin ‘78 eru svo sannarlega áfram tilbúin að leggja hönd á plóg,“ segir Þorbjörg.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, formaður Samtakanna ’78 Mynd/Aðsend
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Jón Viðar segir að Egill sé „yfirtuðari“ þjóðarinnar – „Maður líttu þér nær – segi ég nú bara“

Jón Viðar segir að Egill sé „yfirtuðari“ þjóðarinnar – „Maður líttu þér nær – segi ég nú bara“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Halla leysir frá skjóðunni varðandi bílakaupin 

Halla leysir frá skjóðunni varðandi bílakaupin 
Fréttir
Í gær

Pabbakroppur í þröngri sundskýlu sló í gegn á ÓL

Pabbakroppur í þröngri sundskýlu sló í gegn á ÓL
Fréttir
Í gær

Háhyrningar sökktu skútu á Miðjarðarhafi – Skipstjórinn segir að dýrin hafi vitað upp á hár hvað ætti að gera

Háhyrningar sökktu skútu á Miðjarðarhafi – Skipstjórinn segir að dýrin hafi vitað upp á hár hvað ætti að gera