Gestir miðborgarinnar, íbúar eða þeir sem starfa þar hafa eflaust flestir tekið eftir menntaskólanemum í búningum á blússandi ferð um miðbæinn. Þetta er að sjálfsögðu vorboðinn ljúfi, ekki lóan heldur full ungmenni að dimmitera.
Í vikunni hafa hið minnsta tveir skólar dimmiterað í miðbænum, Menntaskólinn í Reykjavík og Flensborgarskólinn í Hafnarfirði. Ekki hafa allir nemendur farið ítarlega eftir sóttvarnarreglum á meðan verið er að dimmitera ef marka má myndir af skemmtuninni.
Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, ræddi við DV um málið en hún segir að almannavarnir fordæmi ekki dimmiteringarnar. „Við myndum nú aldrei fordæma eitthvað svona, auðvitað skilja allir stöðuna sem krakkarnir eru í,“ segir hún og bendir á það hve langur tími er liðinn síðan menntaskólanemar hafa náð að skemmta sér almennilega saman.
Hjördís segir að almannavarnir biðli til menntaskólanemanna að fara varlega og að þau haldi sér réttum megin við línuna hvað varðar fjöldatakmarkanir.
„Við biðlum til þeirra að halda sóttvarnarreglunum en auðvitað skilja allir stöðuna sem þau eru í. Ef maður finnur til með einhverjum þá er það með þeim, það er allavega mín persónulega skoðun á þessu. En þau þurfa auðvitað að passa sig eins og allir hinir þó svo að verið sé að gleðjast og þó maður skilji að þetta sé erfitt.“