Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Fram kemur að Örn reikni með að strandveiðibátar verði hugsanlega rúmlega 700 í sumar en flestir voru þeir 2012 eða 759. Strandveiðarnar á síðasta ári skiluðu mesta aflanum á land síðan strandveiðar hófust 2009. Á síðasta ári veiddu strandveiðibátar tæplega 12.000 tonn, þar af voru 10.738 tonn af þorski.
Morgunblaðið hefur eftir Erni að hann telji líklegt að fjölgun strandveiðibáta í sumar megi rekja til atvinnuástandsins og nefndi að fólk úr ferðaþjónustunni, flugi og lögfræði stundi strandveiðar.
Hann sagði að með lagabreytingu 2018 hafi átt að tryggja strandveiðum 12 daga í hverjum mánuði en í fyrra hafi heildarviðmiðið náðst 19. ágúst og þá hafi veiðarnar verið stöðvaðar og hafi sex róðrardagar ekki nýst. Heimildum var bætt við í þorski en þær dugðu ekki til að tryggja veiðar út ágúst. „Aðalbaráttumálið er að fá tryggingu fyrir því að heimilt verði að veiða tólf daga í hverjum mánuði. Núna er þakið tíu þúsund tonn, sem óvíst er að dugi í ár. Ég hef enga trú á öðru en bætt verði við í sumar og menn yrðu sáttir við kerfið ef þetta væri fyrirsjáanlegt,“ sagði Örn sem sagði einnig að þótt 2.000 til 3.000 tonnum verði bætt við þorskveiðiheimild strandveiðiflotans skipti það engu máli hvað varðar heildarmynd stofnstærðar þorskstofnsins.