fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fréttir

Von á skemmtiferðaskipum til Reykjavíkur í sumar

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 8. apríl 2021 07:59

Faxaflóahafnir taka á móti fjölda skemmtiferðaskipa ár hvert.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrátt fyrir að heimsfaraldur kórónuveiru herji á heimsbyggðina mega landsmenn eiga von á að sjá skemmtiferðaskip í sumar. Eins og staðan er núna er gert ráð fyrir að 138 skemmtiferðaskip komi til Reykjavíkur með um 150.000 farþega. Reiknað er með að eitthvað verði um afbókanir og skipakomur verði eitthvað færri.

Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. „Það koma skip en þetta verður ekki stórt sumar,“ er haft eftir Pétri Ólafssyni, hafnarstjóra hjá Hafnarsamlagi Norðurlands. Ekkert skip kom til Akureyrar síðasta sumar og aðeins eitt í smærri hafnir fjórðungsins. Haft er eftir Pétri að þetta hafi valdið tekjutapi upp á 450 milljónir króna.

Yfirleitt eru pláss fyrir skemmtiferðaskip pöntuð með tvegga eða þriggja ára fyrirvara. Eitthvað hefur verið um afbókanir á Norðurlandi en þær eru snemmsumars. Flest skipin koma frá því um miðjan júní og fram í miðjan ágúst. „Nokkur skipafélög hafa þegar gefið út að þau ætli að sigla hingað með bólusetta farþega,“ sagði hann.

Hjá Faxaflóahöfnum hafa 138 skipakomur verið bókaðar og með þeim tæplega 150.000 farþegar. Erna Kristjánsdóttir, markaðsstjóri, sagði að gert væri ráð fyrir afbókunum á næstu mánuðum en ekki liggi fyrir hversu margar þær verða. Hún sagði að nokkur félög hafi í hyggju að sigla með farþega sem munu fljúga hingað til lands og fara í sýnatöku við komuna til Keflavíkur og aftur um borð í skipunum. Í fyrra komu sjö skemmtiferðaskip til Faxaflóahafna og með þeim um 1.300 farþegar. Tekjufallið var 600 milljónir króna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Íslendingur fannst látinn á Spáni

Íslendingur fannst látinn á Spáni
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður ekki Coda Terminal verkefnið við Vellina – Þyrfti aðkomu minnihlutans til að koma málinu í gegn

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður ekki Coda Terminal verkefnið við Vellina – Þyrfti aðkomu minnihlutans til að koma málinu í gegn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gangandi fólk kemst ekki lengur eftir gangstéttum í Norðurmýri – Bílastæðavandinn mikill

Gangandi fólk kemst ekki lengur eftir gangstéttum í Norðurmýri – Bílastæðavandinn mikill
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikur í hitabylgju – Gleymdi tveggja ára dóttur sinni úti í bíl með hræðilegum afleiðingum

Harmleikur í hitabylgju – Gleymdi tveggja ára dóttur sinni úti í bíl með hræðilegum afleiðingum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hlaut lífstíðarfangelsi fyrir ráðabrugg um að nauðga og drepa eina skærustu sjónvarpsstjörnu Breta

Hlaut lífstíðarfangelsi fyrir ráðabrugg um að nauðga og drepa eina skærustu sjónvarpsstjörnu Breta
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðmundur Ingi segir verið að hafa almenning að fíflum

Guðmundur Ingi segir verið að hafa almenning að fíflum