Mikil gasmengun mældist á gosstöðvunum í Geldingadölum í morgun og er magnið komið upp fyrir hættumörk. Það er því mjög hættulegt að fara nærri gosstöðvunum núna og hefur svæðinu verið lokað.
Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebooksíðu Lögreglunnar á Suðurnesjum.