fbpx
Mánudagur 03.febrúar 2025
Fréttir

Smit utan sóttkvíar veldur áhyggjum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 18. mars 2021 11:24

Mynd/Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einn greindist innanlands utan sóttkvíar af Covid-19 í gær. Er þetta fyrsta smitið utan sóttkvíar í nokkra daga. Að sögn Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis á upplýsingafundi dagsins veldur smitið nokkrum áhyggjum um að samfélagslegt smit sé í gangi. Unnið er að smitrakningu og raðgreiningu út frá þessu smiti og en niðurstöður liggja ekki fyrir. Er verið að setja fólk í kringum þennan einstakling í sóttkví og skimanir.

Þrátt fyrir þetta vonast Þórólfur eftir því að sú hópsýking sem varð hér á landi fyrir tæpum tveimur vikum sé yfirstaðin en nánast engin smit hafa greinst utan sóttkvíar undanfarið.

Töluvert hefur hins vegar verið um smit á landamærum, þó greindist bara einn á landamærum í gær. Flestir sem greinast á landamærum eru með breska afbrigði veirunnar.

Varðandi væntanlegar tilslakanir á landamærum í vor gagnvart bólusettum ferðamönnum sagðist Þórólfur vilja leggja áherslu á að frá 15. janúar hafi verið í gildi reglugerð um að fólk með gild bólusetningavottorð sé undanþegið skimunum. Sama hefur gilt um farþega utan Schengen-svæðisins sem geta framvísað bólusetningavottorði frá WHO. Þórólfur segir að undanfarið hafi birst fréttir frá Ísrael sem bendi til þess að áhættan af smiti frá bólusettu fólki sé lítil. Þórólfur bendir einnig á að frá 10. desember hafi vottorð um fyrri sýkingu verið tekin gild frá fólki innan EES-svæðisins og þetta hafi gefist vel.

Þórólfur sagði enn fremur að beðið væri eftir mati frá Lyfjastofnun Evrópu á bóluefninu AstraZeneca en tiltelli hafa komið upp um að einstaklingar bólusettir með efninu hafi fengið blóðtappa. Þó er talið ólíklegt að um orsakatengsl sé að ráða. Þórólfur býst við niðurstöðu í dag. Forsvarsmenn Lyfjastofnunarinnar hafi lýst því yfir að þeir telji ekki neitt samhengi milli blæðinga og bóluefnisins. Þórólfur telur líklegt að Lyfjastofnun Evrópu mæli með notkun bóluefnsins og ef svo verður verði haldið áfram að nota þetta bóluefni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sögð ekki hafa áttað sig á eðli parkets

Sögð ekki hafa áttað sig á eðli parkets
Fréttir
Í gær

Mildi að ekki fór enn verr eftir að klakastykki stórskemmdi vinnubíl í Grafarvogi – Myndir

Mildi að ekki fór enn verr eftir að klakastykki stórskemmdi vinnubíl í Grafarvogi – Myndir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sólveig Anna hlessa á nýrri prentarastillingu leikskólanna – Eykur á samviskubitið

Sólveig Anna hlessa á nýrri prentarastillingu leikskólanna – Eykur á samviskubitið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Var íslenska dragdrottningin myrt? – „Það hefur ekkert áunnist í þessari lögreglurannsókn“

Var íslenska dragdrottningin myrt? – „Það hefur ekkert áunnist í þessari lögreglurannsókn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigurði og félögum birt ákæra í stóra metamfetamín-málinu – Reyndu að smygla metamfetamín-kristöllum með bíl

Sigurði og félögum birt ákæra í stóra metamfetamín-málinu – Reyndu að smygla metamfetamín-kristöllum með bíl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn í Bandaríkjunum: Flugumferðarstjóri fékk að fara fyrr heim af vaktinni

Harmleikurinn í Bandaríkjunum: Flugumferðarstjóri fékk að fara fyrr heim af vaktinni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Eydís allt annað en sátt við Ingu Rún: „Er konunni alvara?“

Eydís allt annað en sátt við Ingu Rún: „Er konunni alvara?“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kristján ómyrkur í máli á fundi með borgarstjóra – Krafan er skýr

Kristján ómyrkur í máli á fundi með borgarstjóra – Krafan er skýr