fbpx
Mánudagur 03.febrúar 2025
Fréttir

William hafði gengið berserksgang í sameigninni áður en lögregla kom – Beittu piparúða og kylfum á fyrsta íslenska bankaræningjann

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 15. mars 2021 14:11

William leiddur í Sakadóm árið 1984 vegna bankaránsins. Skjáskot DV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eins og DV greindi frá fyrr í dag var William James Scobie, 58 ára gamall Íslendingur af bandarískum ættum, sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir brot gegn valdstjórninni er hann réðist gegn lögreglumönnum í íbúð sinni. William var dæmdur í þriggja mánaða skilorsðbundið fangelsi og verður honum ekki gerð refsing ef hann heldur skilorð í tvö ár.

DV hefur nú undir höndum dóm Héraðsdóms. Atvikið átti sér stað á heimili Williams í Úlfarsársdal seint í mars árið 2018. Lögreglumenn voru kallaði að heimili Williams vegna þess að hann var sagður hafa gengið berserksgang í sameign hússins, brotið gler og skemmt póstkassa. Var William í uppnámi vegna persónulegra mála og freistaði þess að róa sig niður með því að drekka bjór á heimili sínu.

Þegar lögregla kom á vettvang var William inni í íbúð sinni í eldhúsinu en eiginkona hans og tvö börn voru inni í herbergi í íbúðinni. Fimm lögreglumenn komu inn í íbúðina en þá var William að hella sér bjór í glas inni í eldhúsi. Hann neitaði að leggja bjórinn frá sér og kom til átaka milli hans og lögreglumannanna.

William sagður hafa sagt við lögreglumennina að hann væri vopnaður hnífi en vopnið reyndist vera steikarspaði. Þá var hann sakaður um að hafa kasta kertastjaka á einn lögreglumanninn. Lögregla beitti piparúða og kylfum á William og tókst að setja hann í járn. Er hann sagður hafa veitt mikinn mótþróa við handtökuna og verið með læti.

William neitaði því að hafa ógnað lögreglumönnumum og sagði að þeir hefðu komið honum að óvörum og honum verið brugðið.

Dómara þótti hins vegar hafið yfir skynsamlegan vafa að hann hefði gerst sekur um brot gegn valdstjórninni en vitnisburður lögreglumannanna vóg þar þungt.

Ljóst er af dómnum að lögreglumenn gengu hart fram við handtökuna. William telur sig hafa verið beittan miklu harðræði af lögreglumönnunum og hugleiðir skaðabótamál við ríkið, samkvæmt heimildum DV, ekki síst vegna þess að hann var laminn með lögreglukylfu í höfuðið, sem er ekki samkvæmt valdbeitingarreglum. Fyrir liggur læknisvottorð þar sem staðfest er að William var með áverka á höfði eftir handtökuna.

Fyrir utan þriggja mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm var William dæmdur til að greiða verjanda sínum 600.000 krónur í málsvarnarlaun.

Fyrsti bankaræningi Íslandssögunnar

Á unga aldri vakti William gífurlega athygli fyrir heldur skrautlegra afbrot en hér um ræðir. Árið 1984 framdi hann bífræfið vopnað bankarán í Landsbankanum að Laugavegi 77. William var einnig grunaður um rán í Iðnaðarbankanum í Breiðholti nokkrum dögum áður en það telst vera fyrsta bankarán Íslandssögunnar. Aldrei tókst að sanna þann glæp á William en hann játaði á sig fyrrnefnda ránið og telst því vera fyrsti bankaræningi Íslandssögunnar.

Ránið átti sér stað föstudagskvöldið 17. febrúar árið 1984. Á þessum tíma tíðkaðist að fyrirtæki kæmu með dagsölu sína í sérstökum peningapokum og legðu inn í næturhólf, sem leit út eins og stór bréfalúga. Þetta kvöld ógnaði William starfsmanni ÁTVR sem var að kom með peninga fyrir áfengissölu dagsins frá ÁTVR-versluninni sem þá var við Lindargötu. William beindi afsagaðri haglabyssu að manninum og skaut úr byssunni upp í loftið, uns maðurinn lét undan kröfu hans og afhenti honum féð sem voru tæplega tvær milljónir króna.

19 ára gamall starfsmaður í Landsbankanum var vitorðsmaður með William í ráninu og játaði hann aðild sína að því.

Í DV þann 28. febrúar 1984 er greint frá því að fyrrverandi starfsmaður ÁTVR hafi komið lögreglu á sporið. Maðurinn var málkunnugur William sem hafði sýnt mikinn áhuga á peningaflutningum ÁTVR og spurst mikið út í þá. Maðurinn taldi á þeim tíma ekkert grunsamlegt við þessi samtöl en eftir að hann las um ránið í blöðunum hafði hann samband við lögreglu og greindi frá samskiptum sínum við William.

Í kjölfarið var gerð húsleit á heimili Williams í Breiðholti og fannst þar um helmingur af þýfinu. Einnig fundust þar lambhúshettur, grifflur, úlpa og skófatnaður sem komu heim og saman við lýsingu sjónarvotta að bankaráninu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Sögð hafa stolið af Sjúkratryggingum Íslands í ellefu ár – Móðir og tveir synir hennar fyrir dóm

Sögð hafa stolið af Sjúkratryggingum Íslands í ellefu ár – Móðir og tveir synir hennar fyrir dóm
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Fimm Íslendingum verður vísað frá Bandaríkjunum

Fimm Íslendingum verður vísað frá Bandaríkjunum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mildi að ekki fór enn verr eftir að klakastykki stórskemmdi vinnubíl í Grafarvogi – Myndir

Mildi að ekki fór enn verr eftir að klakastykki stórskemmdi vinnubíl í Grafarvogi – Myndir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Furðar sig á því að hafa fengið barnabætur

Furðar sig á því að hafa fengið barnabætur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Var íslenska dragdrottningin myrt? – „Það hefur ekkert áunnist í þessari lögreglurannsókn“

Var íslenska dragdrottningin myrt? – „Það hefur ekkert áunnist í þessari lögreglurannsókn“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ólöf Tara er látin

Ólöf Tara er látin