Frá miðnætti hafa 11 skjálftar, yfir 3, mælst en á milli klukkan 03.05 og 05.20 mældist enginn skjálfti yfir 3.
Uppfært klukkan 06.25
Skjálftinn sem varð klukkan 05.36 mældist 4,2 að stærð. Upptök hans voru á 6 kílómetra dýpi um 3,3 km norðaustan af Fagradalsfjalli. Skjálfti upp á 3,5 varð um klukkan 05.20. Hann átti upptök á rúmlega 7 km dýpi, rúmlega kílómetra suðvestur af Keili.
Um tíu mínútur í sex riðu svo tveir skjálftar upp á 3,4 og 3,5 yfir.