Nýlega voru drög að frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum á sviði fiskveiðistjórnunar birt á samráðsgáttinni þar sem almenningi gefst kostur á að koma með sínar hugleiðingar á frumvarpinu.
Í drögunum að frumvarpinu er lagt til að heildstæðu viðurlagakerfi verði komið á fót vegna brota á lögum á sviði fiskveiðistjórnar. „Viðurlagakaflar laganna verða samræmdir þannig að sömu heimildir verði milli mismunandi laga til að bregðast við brotum. Einnig er lagt til að Fiskistofa fái heimildir til álagningar stjórnvaldssekta vegna brota á fiskveiðilöggjöfinni,“ segir í drögunum.
Þá er lagt til að heimildir Fiskistofu til að framkvæma rafrænt eftirlit verði styrktar. Að lokum er lagt til að hugtakið raunveruleg yfirráð við framkvæmd reglna um hámarksaflahlutdeildir samkvæmt lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, verði afmarkað betur.
Ekki eru margir sem hafa skrifað umsögn við drögin, raunar er bara einn maður sem hefur skrifað umsögn en það er maður að nafni Garðar Þór Rafnsson. Sá birti ansi óvenjulega umsögn við drögin. „Mér finnst eins og fiskilöggan ætti ekki að fá að koma um borð í skip nema að hjálpa okkur að vinna aflann og kannski hjálpa kokkinum,“ segir Garðar í upphafi umsagnarinnar
„Persónulega hef ég ekki ennþá hitt neina skemmtilega fiskilöggu því þeir skilja aldrei brandarana mína og horfa á mig eins og ég sé kynferðislega brenglaður, síðan mætti alveg fara splæsa í ermahlífar fyrir þær því þessi sjóstakkur er ógeðslegur.“
Umsögn Garðars vakti athygli Þórðar Snæs Júlíussonar, ritstjóra Kjarnans, en hann birti skjáskot af umsögninni á Twitter-síðu sinni um helgina. „Drög að frumvarpi um að breyta allskonar fiskveiðistjórnunarlögum hafa verið birt í samráðsgátt. Ein umsögn komin. Frá sjómanni sem er pirraður yfir því að starfsmenn Fiskistofu fatti ekki kynferðislega hlöðnu brandarana sína. Og hjálpi ekkert til. Stundum er Ísland dásamlegt,“ segir Þórður.