Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu birti færslu á Facebook í dag sem hefur vakið mikla athygli og þó nokkuð umtal.
Þar deilir lögregla aðsendri mynd sem sýnir hjólreiðamenn hjóla á miðri götu á Eiðsgranda, þar sem er 50 km hámarkshraði.
Aðilinn sem sendi inn myndina vildi vita hvort þetta væri heimilt.
Lögregla svaraði því til að samkvæmt umferðarlögum skuli hjólreiðamenn að jafnaði hjóla í akstursstefnu á hjólastíg eða hjólarein eða hægra megin á akrein þeirri sem lengst er til hægri á akbraut sem er ætluð almennir umferð. Hins vegar megi þeir hjóla á miðri akrein á götum þar sem hámarkshraði er ekki meiri en 30 kílómetrar á klukkustund, en þá þurfi að gæta öryggis og halda hæfilegum hraða.
Á Eiðsgranda er hámarkshraði 50 km/klst svo óheimilt er þar að hjóla á miðri akrein.
Skiptar skoðanir
Í athugasemdum má sjá skiptar skoðanir á athæfinu, en færslan hefur fengið gífurleg viðbrögð. Tæplega átta hundruð hafa brugðist við færslunni, rúmlega tvö hundruð skrifað athugasemdir. Mörgum verður þar tíðrætt um frekju hjólreiðamanna og skeytingarleysi þeirra gagnvart bifreiðum. Eins taka þar til varna hjólavinir og benda á þá framkomu og tillitsleysi sem hjólreiðafólk má sæta í umferðinni.
Ein hjólreiðakona skrifar að hún muni halda áfram að hjóla á miðri akrein ef henni finnist það auka öryggi sitt þar sem ökumenn eigi það til að aka alltof nærri hjólreiðamönnum þegar þeir taka fram úr.
Margir benda á að aðilinn sem tók myndina hafi væntanlega sjálfur gerst brotlegur við umferðarlög þar sem óheimilt er að nota farsíma undir stýri.
Hroka gengi
Einn líkir hjólreiðamönnum á Seltjarnarnesi við gengi og skrifar:
„Þetta eru hroka hjólagengið á Nesinu. Þeir telja sig yfir lög hafna.“
Annar skrifar:
„Hjólreiðamönnum í latex galla er alveg sama hvað séu reglur og ekki, þeir laga eigin reglur við þau tækifæri sem henta hverju sinni“
Lögregla er einnig gagnrýnd fyrir færsluna. Einn skrifar
„Þið eruð með þessu að skapa hættu fyrir hjólreiðamenn og ættuð að skammast ykkar.“
https://www.facebook.com/logreglan/posts/3925712880825564
Færsla lögreglunnar hefur einnig vakið athygli á Twitter. Einn tístari vekur athygli á færslunni og tilkynnir að lögreglan sé ekki með hjólreiðafólki í liði.
Hjólreiðafólk ath @logreglan er ekki í ykkar liði. Þetta er amk ekki gert til að hjálpa núverandi aðstæðum í umferðinni. @katrinat @gislimarteinn @Dagurb @erlendur @visir_is @mblfrettir pic.twitter.com/RmaodFqgYx
— Óskar Ómarsson (@oskarom) February 26, 2021
Katrín Atladóttir, borgarfulltrúi, segir fráleitt af lögreglunni að birta aðsendu myndina, enda geti lögregla ekki vitað á hvaða hraða hjólreiðafólkið er.
Þingmaður Pírata, Andrés Ingi Jónsson, segir það slæmt að lögregla sé að búa til vettvang fyrir þær hræðilegu athugasemdir sem hafa verið skrifaðar undir færsluna á Facebook.
Kommentin þarna undir eru sum alveg hræðileg. Slæmt að lögreglan sé að búa til þannig vettvang.
— Andrés Ingi (@andresingi) February 26, 2021
Einn tístari bendir á að hjólreiðafólk hjóli á miðri akrein því óþolinmóðir bílstjórar taki fram úr við fáranlegar aðstæður.
Það sem er mest pirrandi við að hjóla eru óþolinmóðir bílstjórar sem taka fram úr manni við fáránlegar aðstæður. Þetta er alveg 100% þannig bílstjóri. Ástæðan fyrir að maður hjólar á miðjum vegi er til að vera öruggari. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mætti alveg slaka aðeins á. https://t.co/SV7L2jG2Qs
— ÍsJökull (@IsJokull) February 26, 2021
Sævar Helgi Bragason – Stjörnu Sævar lýsir hvernig það er að hjóla á höfuðborgarsvæðinu:
Til að komast út úr hverfinu mínu yfir á bugðótta stíginn í hrauninu þarf að þvera tíu akreinar þar sem ökumenn bruna ítrekað yfir á rauðu ljósi. Í hverfinu sjálfu er 30 km hámarkshraði og hægri réttur – samt óttast maður um líf sitt í hvert sinn sem hjólað er um hverfið.
— Sævar Helgi Bragason (@saevarhb) February 26, 2021
Ekki alfarið bannað og það er spandex en ekki latex
Færslan hefur einnig ratað inn á vefsíðuna hjolafrettir.is. Þar er bent á að hjólreiðafólk verði fyrir miklu hatri sem birtist vel í athugasemdum hjá lögreglunni.
„Lögreglan svarar því svo til að það sé ekki leyft og í athugasemdum sem fylgja fljúga fjölmörg fúkyrðin út í hjólreiðafólk og í raun má segja að þar birtist það mikla hatur sem hjólreiðafólk finnur oft fyrir frá þeim sem það deilir umferðarými með.“
Hjólafréttir benda á staðreyndir í málinu. Meðal þeirra er að fólkið á myndinni er keppnisfólk í hjólreiðum og hjóli Eiðsgrandann á 44 km/klst hraða. Eins sé það rangt hjá lögreglu að óheimilt sé að hjóla á miðri akrein því í lagatexta segi að halda eigi sig til hægri að jafnaði, ekki alltaf.
Eins vísa Hjólafréttir því á bug að hjólreiðafólk klæðist að jafnaði latex.
„Af ummælum við Facebook færslu lögreglunnar mætti ráða að flest hjólreiðafólk sé klætt í latex. Undirritaður hefur enn ekki rekist á hjólreiðafólk í latex-galla, en marga í spandexi.“
Mörgum þykir færsla lögreglunnar til þess fallin að draga úr öryggi hjólreiðafólks, en í athugasemdum og samfélagsmiðlum hafa nokkrir litið á færslu lögreglunnar sem frían passa til að jafnvel aka yfir hjólandi umferð, þó væntanlega sé ásetningurinn að baki slíkum yfirlýsingum harla einbeittur.