Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag. Fram kemur að sýnin hafi verið rannsökuð 18. og 19. janúar og niðurstöðurnar hafi verið birtar 22. janúar. Verkfræðistofan Verkís hafi unnið skýrslu úr þeim en hún hafi ekki verið birt opinberlega né fyrir foreldrum nemenda í skólanum.
Morgunblaðið hefur eftir Sigríði Ólafsdóttur, sem á barn sem veiktist mikið vegna myglunnar, að ekkert samráð sé á milli borgarinnar og skólastjórnenda og foreldra nemenda í skólanum. „Engar upplýsingar berast til foreldra barnanna. Það eru engin úrræði sem standa okkur til boða. Ekkert samráð haft við okkur, ekki neitt,“ hefur Morgunblaðið eftir henni.
Hún sagði jafnframt að foreldrafélagið og skólaráð Fossvogsskóla hafi beitt sér af fremsta megni í baráttunni en það sé afar erfitt að eiga við borgina. „Við erum bara fólk í sjálfboðavinnu að eiga við risabatterí hjá Reykjavíkurborg,“ sagði hún.
Hún sagði einnig að foreldrar hafi ítrekað óskað eftir að sýni yrðu tekin í skólanum því mörg börn hafi veikst þrátt fyrir framkvæmdi og þrif. „Við vildum að þeir sýndu fram á það að allt væri raunverulega í lagi því börnin voru enn þá veik. Þá var því lofað að skólinn yrði þrifinn í gegn,“ sagði hún. Í kjölfarið voru sýni tekin og fundur um niðurstöðurnar var haldinn 17. febrúar. Sagði Sigríður að foreldrarnir hafi ekki verið látnir vita af honum, hafi eiginlega bara frétt þetta í fjölmiðlum.
Hún sagðist ekki gefa mikið fyrir þær endurbætur sem hafa verið gerðar á skólanum eftir að myglan kom fyrst upp. „Eins og það blasir við okkur er búið að klúðra þessum framkvæmdum mjög illa. Myglan sem finnst núna er að finnast á sama stað í fjórða sinn, í glænýju þaki. Og þetta kemur stjórnendum alltaf jafnmikið á óvart. Núna er þetta líka farið að líta illa út fyrir það fólk sem staðið hefur í þessu svona lengi, þau eru búin að eyða fullt af peningum í viðgerðir sem hafa mistekist og núna snýst þetta líka um að bjarga ásýnd sinni,“ sagði hún.