fbpx
Fimmtudagur 06.febrúar 2025
Fréttir

Sólveig Anna kemur Ragnari til varnar – „Það hefur auðvitað engin áhrif á blaðamann Fréttablaðsins“

Máni Snær Þorláksson
Þriðjudaginn 16. febrúar 2021 17:00

Mynd/Samsett

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, kemur Ragnari Þór Ingólfssyni, formanni VR, til varnar í Facebook-færslu sem hún birti nú síðdegis í dag. Fréttablaðið sagði frá því á forsíðu blaðsins í dag að Ragnar hefði verið í hópi manna sem staðinn var að því að leggja net í Holtsá, en slíkt er andstætt lögum. Bóndi á landinu mun hafa komið að netinu og gerði lögreglu viðvart. Málið var svo kært og hefur lögreglan á Suðurlandi staðfest að kæra vegna málsins hafi borist.

Síðan þá hefur Ragnar sagt fréttaflutning Fréttablaðsins alrangan og átti hann fund með lögmanni sínum í morgun vegna hugsanlegs meiðyrðamáls. Þá sagði Ragnar í samtali við blaðamann DV að málið liti út eins og ófrægingarherferð gegn sér í tengslum við kosningarnar til formanns VR sem fram fara í byrjun mars. Ragnari barst mótframboð í embætti formanns.

„Ég hef aldrei verið beðin afsökunar á þessum rógburði“

Sólveig byrjar færsluna á því að segja frá því þegar hún lenti í svipuðu máli og Ragnar. „Þegar ég hafði verið formaður Eflingar í nokkra mánuði fékk ég símtal frá blaðamanni Morgunblaðsins. Hún spurði að því hvort uppnám hjá nokkrum manneskjum sem starfað höfðu hjá félaginu yfir valdatöku minni væri ekki sönnun á því að ég og Viðar Þorsteinsson ætluðum að nota „digra sjóði fé­lags­ins upp á 12 millj­arða króna“ til að gefa sósíalistum,“ segir hún.

„Ég var algjörlega forviða á spurningunni og öðrum ásökunum blaðamanns. Tveimur dögum seinna var „frétt“ um þetta svo slegið upp á forsíðu Morgunblaðsins. Inn í blaðinu var svo í „fréttaskýringu“ vitnað í ýmsa ónafngreinda viðmælendur og með því var hægt að fara fram með ógeðslegum lygum og staðhæfulausum fullyrðingum um þjófs-eðli mitt. Þessi lyga-frétt var upphafið að fjölmörgum tilefnum skíta-dreifara hægrisins til árása. Til dæmis notaðist fyrrum dómsmálaráðherra, Björn Bjarnason, við þessar lygar oftar en einu sinni í deleringum um mig og Eflingu í bloggi sínu. Ég hef aldrei verið beðin afsökunar á þessum rógburði.“

„Ákveðið hefur verið að Ragnar Þór skuli kallaður þjófur á forsíðunni“

Sólveig virðist ekki vera sátt með fréttaflutning Fréttablaðsins af málinu en hún segir að um sé að ræða lygar. „Í morgun birti Fréttablaðið á fosíðu sinni lygar um Ragnar Þór, formann VR. Hann er líka ógeðslegur þjófur, veiði-þjófur sem stelur frá Seðlabankanum! Blaðamaður hefur náð í Ragnar og borið á hann sakirnar, Ragnar svarar: „Ég lagði ekki nein net þarna, mér finnst með algjörum ólíkindum að það sé verið að draga mig inn í mál sem er mér óviðkomandi.“ En það hefur auðvitað engin áhrif á blaðamann Fréttablaðsins,“ segir Sólveig.

„Ákveðið hefur verið að „fréttin“ skuli birt, ákveðið hefur verið að Ragnar Þór skuli kallaður þjófur á forsíðunni og ekkert skal stoppa það. Það er vegna þess að brátt verða formannskosningar í VR og ekkert þrá þau meira sem telja sig eigendur Íslands, lífeyrissjóðanna, og okkar allra, en að losna við Ragnar Þór. Til að reyna að knýja á um að það verði að veruleika er og verður einskis svifist.“

„Tilgangurinn er að sverta mannorð Ragnars“

Sólveig bendir þá á ummæli lögreglunnar um að Ragnar hafi hvorki stöðu sakbornings né vitnis í tengslum við málið. Þá segir hún að lögmaður Ragnars hafi sagt að Fréttablaðið hafi vitað þetta þegar fréttin var gerð. „Lögmaðurinn segir að með fréttaflutningi sínum hafi Fréttablaðið brotið gegn siðareglum blaðamanna og ákvæði fjölmiðlalaga. En auðvitað hefur þetta engu máli skipt þegar ákvörðunin var tekin og mun ekki skipta máli. Af því að tilgangurinn helgar meðalið. Og tilgangurinn er að sverta mannorð Ragnars Þórs af því hann vill ekki bara hlýða og halda kjafti, og er þessvegna stórhættulegur hagsmunum þeirra sem telja sig eigendur alls,“ segir hún.

Að lokum segist hún vona að Fréttablaðið biðjist afsökunar á fréttunum um málið. Hún er þó ekki vongóð um að það gerist. „En ég held samt að það muni ekki gerast. Það tíðkast ekki hjá íslenska hægrinu að biðja fólk afsökunar á lygum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Alfreð átti að vera í nauðungarvistun þegar morðin voru framin

Alfreð átti að vera í nauðungarvistun þegar morðin voru framin
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Óveðrinu er sko ekki lokið: Rauðar viðvaranir taka aftur gildi

Óveðrinu er sko ekki lokið: Rauðar viðvaranir taka aftur gildi
Fréttir
Í gær

Sex manna hvolpasveit handtekin á Spáni

Sex manna hvolpasveit handtekin á Spáni
Fréttir
Í gær

Björgunarsveitir víða að störfum og Vellirnir á floti

Björgunarsveitir víða að störfum og Vellirnir á floti
Fréttir
Í gær

Miðbæjarbúar skiptast í fylkingar eftir viðtal Íslands í dag við Ólaf og Esther – „Komin út fyrir allan þjófabálk“

Miðbæjarbúar skiptast í fylkingar eftir viðtal Íslands í dag við Ólaf og Esther – „Komin út fyrir allan þjófabálk“
Fréttir
Í gær

Sakar Ingu Sæland um hótanir í garð sjávarútvegsins

Sakar Ingu Sæland um hótanir í garð sjávarútvegsins