Norðlenska birti í dag opnu í Fréttablaðinu þar sem má sjá mynd af börnum með skegg og textann „Eldast fljótt“ en auglýsingin hefur vakið mikla athygli. Auglýsingastofan á bakvið opnuna er stofan Cirkus en blaðamaður náði tali af Guðlaugi Aðalsteinssyni, sem segist bera titilinn „Cirkusstjóri“.
„Fyrst og fremst er þetta orðaleikur. Þegar við byrjuðum á þessari herferð fyrir Norðlenska þá fannst okkur vera sterkur þessi punktur með að þú getur verið fljótur að elda þetta. Í staðinn fyrir að eyða löngum tíma fyrir framan eldavélina getur þú nýtt meiri tíma með börnunum þínum, til dæmis horft á einn Hvolpasveitar-þátt,“ segir Guðlaugur og segir að fólk hafi almennt tekið vel í herferðina.
„Flestir hafa verið með jákvæð viðbrögð við þessu en ég sé svo sem ekki hvað allir eru að segja um þetta þannig það gæti verið að aðrir séu að segja annað á öðrum stöðum. Það er alltaf jákvætt ef herferðin vekur einhver viðbrögð því það er ekki á hverjum degi sem fólk hefur skoðanir á kjötbollum, held ég.“