Fram kemur að desembermánuður reynist oft mörgum erfiður og að þeim sem leita aðstoðar samtakanna fjölgi á milli ára. i desember 2019 hringdu 194 í hjálparsíma samtakanna en í desember 2020 voru símtölin 537. Þetta er 176% aukning á milli ára. Það á sinn þátt í þessari aukningu að nú er hjálparsíminn opinn allan sólarhringinn.
„Við fögnum því að fólk virðist viljugra að leita sér hjálpar og gera það og sömuleiðis vita fleiri af okkur en það er samt svoleiðis að starfsemi okkar hefur fimmfaldast. Í fyrra voru samtals rúmlega 4.000 viðtalsstundir hjá okkur, þannig að þetta er mjög mikið, og nú í janúar eru viðtöl yfir 500 talsins,“ hefur Morgunblaðið eftir Kristínu.
Samtökin eru með aðstöðu á Baldursgötu í miðborginni en húsnæðið er orðið allt of lítið vegna aukinna umsvifa að sögn Kristínar. Það sé uppbókað frá morgni til kvölds og búið sé að bæta hluta úr laugardögum við opnunartímann.
Hún lagði áherslu á mikilvægi þeirra skilaboða að sjálfsvíg sé aldrei lausn á neinum vanda, heldur aðeins harmleikur sem skilji eftir sig mörg sár. „Það eru alltaf til lausnir og það er hægt að vinna í öllu. Það á enginn að burðast einn með sálrænan sársauka. Hjá okkur starfar einstakur hópur fólks sem sérhæfir sig í þessum málaflokki,“ hefur Morgunblaðið eftir henni.