fbpx
Sunnudagur 09.febrúar 2025
Fréttir

Oktavía Hrund er buguð af ástandinu – „Hreinlega okkur öllum til skammar“

Máni Snær Þorláksson
Föstudaginn 29. janúar 2021 12:38

Mynd/Píratar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég hef ekki tilfinningu fyrir því að spilling sé til staðar, ég hreinlega sé hana. Mínar tilfinningar gagnvart spillingu eru hins vegar margar og til staðar. Ég hef eftir 30 ár erlendis snúið aftur heim, með reynslu af afhjúpun spillingar erlendis og hef með ástfullum augum séð landið sem ég fæddist berjast við spillingu, innan við meingallað kerfi, sem virðist vera hannað til að viðhalda spillingu.“

Svona hefst pistill sem Oktavía Hrund Jónsdóttir skrifar en pistillinn birtist á Vísi. Oktavía, sem er hvað þekktust fyrir störf sín innan Pírata, segist vera buguð af núverandi ástandi og að hún sé að sækjast eftir breytingum. Pistillinn fjallar um nýlegar niðurstöður um spillingu hér á landi miðað við önnur lönd. Ísland lenti í 17. sæti á árlegum lista Transparency International þegar kemur að spillingu. Oktavía er til að mynda ósátt með orð Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra um þessar niðurstöður en hann sagði mælikvarðann hvorki vera algildann né fullkominn.

„Orð ráðherra um mælingar Transparency International á spillingu falla akkúrat í þennan þekkta gaslýsingar farveg þar sem reynt er að gera lítið úr skýrslum og sérfræðingum sem benda á spillinguna sem er til staðar á Íslandi,“ segir Oktavía. „Transparency International birtir á hverju ári spillingarvísitölu flestra landa heimsins og eru löndin metin samkvæmt opinni og aðgengilegri aðferðarfræði. Að hafa í höndum er ekki það sama og tilfinning kveður ráðherra, en hann ætti kannski að líta til þess að hér á landi finnast talsvert mörg dæmi um akkúrat spillingu, því í merkingu orðsins felst margt og mikið meira en einungis lagaleg túlkun þess.“

„Sjónarmið fortíðarfrekju“

Oktavía bendir á hvað spilling sé en hún útskýrir hana sem misbeitingu valds í þágu eigins gróða. „Spilling er í bakherbergjum, á gráum svæðum og kerfislæg á Íslandi. Að sitja sem fastast áfram á þingi í trausti almennings, með möntruna löglegt en siðlaust er hreinlega okkur öllum til skammar. Ég vil vera stolt af Íslandi, af íslenskum afrekum, af stjórnmálunum okkar. Ég vil taka þátt í stjórnmálum sem eru til fyrirmyndar. Gaslýsingar og frekja er í andstæðu við þá ósk.“

Þá segir hún að það sé vanvirðing við þjóðina að þessi skýrsla sé soðin niður í svokallaðar tilfinningar manna. „Orð hans leiða bersýnilega í ljós hugsjón og sjónarmið fortíðarfrekju sem heldur að það sé styrkleiki að standa á sömu gömlu gaslýsingartöktunum og halda að enginn fylgist með og allt verður gleymt á morgun.“

„Eitthvað sem hefur því miður ekki tekist hjá núverandi ríkisstjórn“

Oktavía er þó ekki búin að gefast upp en hún segir að tækifærin sem Ísland hefur til að takast á við spillinguna séu mörg. „Þau er að finna innan við hið opinbera, í kerfunum okkar allra, í fjölskyldum og einstaklingum en byrjum kannski með tilmælum GRECO, samtaka ríkja innan Evrópuráðsins gegn spillingu, sem ráðherra vísar í sem tilfinningar manna, og sem á síðasta ári tóku sérstaklega fram í skýrslu sinni árið 2020 að efling á trausti almennings gagnvart framkvæmdavaldi og löggæslustofnunum er grundvöllur heilbrigðs samfélags,“ segir hún.

„Eitthvað sem hefur því miður ekki tekist hjá núverandi ríkisstjórn. Þessar svokölluðu tilfinningar lýsa því sem almenningur sjálfur hefur bent á: við hreinlega treystum ekki fulltrúalýðræðinu og stofnunum þess og lítið hefur verið gert til að styrka það traust.“

Að lokum bendir hún á að fólkið í landinu getur haft áhrif. „Við veljum – oftar en á fjögurra á fresti – hvernig við viljum vera, sem einstaklingar, sem samfélag, sem þjóð. Fulltrúalýðræðið fjallar ekki einungis um að ekki kjósa frekjukarla, dónakarla eða þau sem standa vörð um kerfislæga spillingu. Við breytum samfélaginu öll með því að velja gagnsæið á hverjum degi, við að setja mörk og já, fylgja tilfinningum okkar. Því innsæið segir okkur margt og mikið, því má ekki gleyma.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann játar sök varðandi vörslu og dreifingu barnaníðsefnis – Svarar til saka 15. febrúar

Jóhann játar sök varðandi vörslu og dreifingu barnaníðsefnis – Svarar til saka 15. febrúar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Landsréttur sneri við dómi úr héraði – Kennari fær skaðabætur eftir að hafa slasast við árás nemanda

Landsréttur sneri við dómi úr héraði – Kennari fær skaðabætur eftir að hafa slasast við árás nemanda