fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Fréttir

Reiðipóstur Þorsteins til starfsmanna Samherja -„Örvæntingarfull hefndaraðgerð“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Föstudaginn 4. september 2020 11:18

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, var gífurlega óánægður með fréttatíma RÚV í gær þar sem greint var frá því að sex núverandi og fyrrverandi starfsmenn Samherja séu með réttarstöðu sakbornings í sakamáli sem héraðssaksóknari er með til rannsóknar.

Hann birti opið bréf til starfsmanna fyrirtækisins á vefsíðu Samherja þar sem hann fer ófögrum orðum um RÚV.

„Í aðalfréttatíma Ríkisútvarpsins í gærkvöldi var fyrsta frétt sjónvarpsstöðvarinnar um að sex núverandi og fyrrverandi starfsmenn Samherja væru með réttarstöðu sakbornings í sakamáli sem er til rannsóknar hjá embætti héraðssaksóknara. Í fréttinni voru birtar ljósmyndir af þeim starfsmönnum sem eiga í hlut.“

Aldrei lagst jafn lágt

Þorsteinn telur fréttina lágkúru og sé ríkisfjölmiðlinum til minnkunar.

„Ég tel óhætt að fullyrða að Ríkisútvarpið hafi aldrei lagst jafn lágt í fréttaflutningi og með þessari frétt. Í því sambandi vekur athygli að enginn annar fjölmiðill fetar þessi niðurlægingarspor Ríkisútvarpsins í myndbirtingum. Engar nýjar upplýsingar komu fram, fyrir utan þessa breytingu á réttarstöðu einstaklinganna, enda hefur margsinnis verið greint frá því að héraðssaksóknari sé með mál til rannsóknar sem tengist starfsemi dótturfélaga Samherja í Namibíu.“

Þungbær myndbirting

Furðar Þorsteinn sig á því að nú hafi áður óþekktir starfsmenn Samherja verið dregnir fram í sviðsljósið undir nafni og mynd, en slíkt sé ekki einu sinni gert í ofbeldismálum.

„Öllum má vera ljóst að myndbirting af þessu tagi er mjög þungbær fyrir þá sem eiga í hlut og fjölskyldur þeirra. Allir þeir starfsmenn, sem birtar voru myndir af í gærkvöldi, eru óþekktir og hafa aldrei eða örsjaldan verið nafngreindir í fjölmiðlum áður. Menn þurfa ekki að velkjast í neinum vafa um að eini tilgangur með þessari myndbirtingu, í annars afar innihaldsrýrri frétt, var að valda sem mestum skaða. Er þetta enn einn vitnisburðurinn um hnignun fréttastofu Ríkisútvarpsins.“

Tímasetningin ekki tilviljum

Finnst Þorsteini tímasetning þessa fréttaflutnings grunsamleg í ljósi þess að undanfarnar vikur hefur Samherji birt myndbönd þar sem fréttaflutningur Ríkisútvarpsins af Seðlabankamálinu hefur verið gagnrýndur. Eins hefur Samherji kært 11 starfsmenn RÚV til siðanefndar.

„Samherji setti fram efnislega gagnrýni á störf Ríkisútvarpsins og hefur notað lögbundna ferla vegna brota á siðareglum. Frétt gærkvöldsins er hins vegar ekkert annað en örvæntingarfull hefndaraðgerð dulbúin sem frétt og gróf aðför að saklausu fólki.“

Ætla að halda áfram að leiðrétta meintar rangfærslur

Þorsteinn minnir á það að enginn fótur sé fyrir ásökunum um saknæma háttsemi vegna starfsemi Samherja í Namibíu. Þetta muni koma skýrar fram á næstu vikum og ætlar Samherji að leiðrétta meintar rangfærslur sem í fjölmiðlum hafa birst.

„Ég kvíði ekki því máli sem er til rannsóknar en rannsókn er ekki dómur og það er óverjandi að ríkisfjölmiðillinn felli dóma yfir saklausu fólki með þeim hætti sem var reynt í gærkvöldi. Kröftug viðbrögð ykkar, í skilaboðum og tölvupósti til mín, sýna að mörgum er greinilega misboðið.

Ég vil að lokum þakka ykkur öllum fyrir ómetanlegt framlag ykkar í rekstri Samherja við krefjandi aðstæður á tímum heimsfaraldurs. Ég er auðmjúkur og þakklátur fyrir að félagið búi yfir jafn öflugum mannskap og raun ber vitni.

Með bestu kveðju,
Þorsteinn Már“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Diljá spyr hvort aðeins fólk með réttar skoðanir megi tala um kynbundið ofbeldi

Diljá spyr hvort aðeins fólk með réttar skoðanir megi tala um kynbundið ofbeldi
Fréttir
Í gær

Stefán Einar hraunar yfir kennaraforystuna – „Er metnaðarleysið algjört á þessum stöðum?“

Stefán Einar hraunar yfir kennaraforystuna – „Er metnaðarleysið algjört á þessum stöðum?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stingskatan Karlotta varð ólétt án maka – Meyfæðingin raungerðist þó ekki

Stingskatan Karlotta varð ólétt án maka – Meyfæðingin raungerðist þó ekki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sögðu móður sína ekki muna kennitöluna sína þegar hún gerði erfðaskrána sem tvístraði systkinahópnum

Sögðu móður sína ekki muna kennitöluna sína þegar hún gerði erfðaskrána sem tvístraði systkinahópnum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Flugi til Íslands aflýst vegna bilunar á síðustu stundu – Vélin var komin út á flugbrautina

Flugi til Íslands aflýst vegna bilunar á síðustu stundu – Vélin var komin út á flugbrautina
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gestrisni Íslendinga kom spænsku pari gríðarlega á óvart – „Þetta fólk þekkti okkur ekki neitt“

Gestrisni Íslendinga kom spænsku pari gríðarlega á óvart – „Þetta fólk þekkti okkur ekki neitt“