Myndirnar tvær sem um ræðir eru af börnum sem vísað hefur verið úr landi og hanga þær annars vegar utan á útidyrahurðinni og hins vegar innan á henni. Á annarri myndinni stendur að barninu hafi verið vísað úr landi árið 2016 en á hinni stendur að barninu hafi verið vísað úr landi árið 2019 ásamt óléttri móður sem var komin 36 vikur á leið. Myndirnar, sem festar voru upp á útidyrahurðina sem er úr gleri, virðast hafa verið límdar með einskonar veggspjaldalími svo ekki er hlaupið að því að ná myndunum af dyrunum.
Ekki er vitað hver, hverjar eða hverjir eru á bakvið uppsetningu þessara mynda. Ástæðan fyrir myndunum er þó ekki jafn dularfull, í síðustu viku átti að vísa Kehdr-fjölskyldunni úr landi. Fjölskyldan fannst ekki og hefur farið huldu höfði síðan. Margir hafa mótmælt brottvísun fjölskyldunnar, bæði í eigin persónu og á samfélagsmiðlum. Til að mynda hefur myllumerkið #þaueruhjámér vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum en undir því myllumerki segir fólk að egypska fjölskyldan sé í raun í felum hjá þeim. Myndirnar sem um ræðir eru að öllum líkindum hluti af mótmælum við brottvísun Kehdr-fjölskyldunnar sem hefur farið huldu höfði síðan þeim átti að vera vísað úr landi.
Ekki náðist í Áslaugu Örnu við gerð fréttarinnar.