Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, var sökuð af fyrrum starfsmönnum stéttarfélagsins um að hafa brotið gegn réttindum þeirra í starfi og staðið með röngum hætti að starfslokum þeirra. Um þetta hefur verið fjallað nokkuð í gegnum síðustu misseri. Meðal þessara starfsmanna var fyrrum fjármálastjóri Eflingar, Kristjana Valgeirsdóttir. Stundin greindi frá því í morgun að fyrirtæki i eigu Kristjönu og sambýlismanns hennar, M.B veitingar, sé grunað um stórfellt bókhalds- og skattalagabrot. En fyrirtækið átti í tug milljóna viðskiptum við Eflingu á meðan Kristjana var þar að störfum. Nú hefur skiptastjóri þrotabús M.B. veitinga tilkynnt héraðssaksóknara um grun um brot gegn bókhaldslögum.
Sólveig tjáir sig um málið í pistli á Facebook. Þar greinir hún frá þvi að erfiðlega hafi gengið að fá Kristjönu til að veita upplýsingar og skýr svör.
„Fyrrverandi fjármálastjóri Eflingar var ávallt mjög andsnúin því að liðsinna mér þegar ég tók við sem formaður. Að fá skýr svör, útskýringar, aðstoð var aldrei sjálfsagt mál og eiginlega alltaf frekar erfitt, þrátt fyrir að það hlyti að vera augljóst að ég vildi vanda mig eins mikið og hægt var og forðast það að gera mistök.“
Sólveig segir að hún hafi fengið áfall þegar Kristjana steig fram og sakaði Sólveigu um óviðunandi framkomu gegn undirmönnum sínum.
„Og þegar viðbjóðsleg lygasagan fór af stað um að fyrrum fjármálastjóri hefði verið „send í veikindaleyfi“ af því að ég hefði reynt að fá einhverja glæpsamlega reikninga samþykkta var ég mjög sjokkeruð og eiginlega alveg miður mín. Vegna þess að í raun gerðist nákvæmlega hið þveröfuga: Ég fór til fjármálastjóra og spurði um allt, öll smáatriði, vegna þess að ég var einstaklega upptekin af því að gera allt 100% rétt. Það vissi hún og fyrrum skrifstofustjóri Eflingar sem þó fóru um með ógeðslegan rógburð um mig og starfshætti mína aftur og aftur.“
Nú þegar fréttir hafi borist af því að fyrirtæki Kristjönu hafi mögulega brotið gegn lögum, þá telur Sólveig þann möguleika vera fyrir hendi að þar með sé komin ein skýring á þessum undarlegu samskiptum hennar og Kristjönu.
„En hér er kannski komin ein skýring á því hversu stórkostlega undarleg stemningin og samskiptin voru, hversu erfiðlega það gekk að fá útskýringar og hjálp hjá einum af mikilvægustu starfsmönnum félagsins.
Vísar Sólveig svo til eftirfarandi hluta fréttar Stundarinnar:
„Grunurinn snýr að því að forsvarsmenn félagsins hafi ekki staðið skil á opinberum gjöldum um árabil, alls vel á þriðja tug milljóna króna, og þá var ekkert bókhald haldið hjá félaginu. Enn fremur gaf forsvarsmaður félagsins, Mark Kristján Brink, sem er sambýlismaður Kristjönu, út reikninga á Eflingu í nafni M.B. veitinga en tók við greiðslunum persónulega. Þær greiðslur sá Kristjana sjálf um að greiða hjá Eflingu.“