Undanfarnar vikur hafa umræður um ferðasumarið verið áberandi í þjóðfélaginu, enda er sterklega búist við því að Íslendingar muni ferðast meira innlendis en vanalega.
Eflaust eru margir að hugsa um það hvernig sé ódýrast að ferðast, og mögulega er komið gott svar við þeirri spurningu.
Í Facebook-hópnum Landið mitt Ísland hefur mikið af slíkum umræðum farið fram, auk þess sem fyrirtæki hafa auglýst þjónustu sína. Í nýlegri færslu í hópnum greinir kona frá ferðalagi sem hún hefur skipulagt. Þar kemur fram að fimm daga ferð hringinn í kringum landið fyrir tvo kosti 46500 krónur, en henni finnst það mjög gott verð.
„Allt uppábúin rúm og morgunmatur innifalinn einn morgun. Mér finnst þetta mjög sanngjarnt og get alls ekki tekið undir okur og leiðindaumræðu. Hlakka mikið til að ferðast um fallega landið okkar í sumar.“
Umrætt ferðalag mun fara fram í júní, en gistingin verður á nokkrum stöðum víðs vegar um landið. Stormur cottages við Egilsstaði, Hótel Hamar við Breiðdalsvík, Dynjandi gistiheimili við Höfn og seinast en ekki síst Vík cottages.
Færslan hefur vakið mikla athygli, en fjöldi fólks hefur tjáð sig í ummælakerfi hennar. Þar segir fólk að þetta verð sé talsvert lægra en það hafði grunað, en einn heldur því fram að um sé að ræða um það bil 10 ára gamalt verð.