fbpx
Miðvikudagur 26.febrúar 2025
Fréttir

Kári segir að Þórólfur hljóti að hafa fengið vitrun í draumi

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 8. desember 2020 21:05

Kári Stefánsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Menn verða að geta skilið þessar sóttvarnir. Að leyfa opnun á sundlaugum og banna líkamsræktarstöðvar, á hverju byggir það? Það eru engin gögn sem sýna fram á að annað sé betra eða verra. Þórólfur hlýtur að hafa fengið vitrun í draumi. Þegar þú byrjar að nota svona reglur sem ekki er hægt að skilja eða styðja með gögnum þá ferð þú að búa til mótþróa,“ sagði Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, í viðtali við Kastljós í kvöld.

Kári er ekki allskostar sáttur við þær litlu tilslakanir sem kynntar eru í nýrri reglugerð um sóttvarnir og gilda til 12. janúar. „Þegar menn fara að slaka á núna þá borgum við fyrir það seinna,“ sagði Kári sem hefði kosið að hafa sóttvarnareglur óbreyttar fram yfir áramót.

Kári segir þó að sóttvarnayfirvöld hafi staðið sig stórkostlega vel í heildina og hann sé alls ekki að fordæma nýju reglurnar. „Ég held því fram að þetta séu ágætis aðgerðir eins og þær eru þó að ég hefði kosið að halda þeim óbreyttum. En skilaboðin sem eru send út með því að segja að nú ætlum við að létta á þessum aðgerðum eru þau að þetta sé að ganga býsna vel. En ég hef fréttir fyrir þetta fólk, þetta er ekkert að ganga býsna vel. Það er alltaf að greinast eitthvað af tilfellum utan sóttkvíar og það er alltaf slangur af veiru að berast yfir landamæri þrátt fyrir þessar einstaklega góðu aðgerðir sem hefur verið komið á. Ég hefði kosið að við sætum á höndum okkar, pössuðum okkur á að grípa ekki of fljótt í strenginn og létta á aðgerðum,“ segir Kári. (Sjá nánar á RÚV)

Kári er mjög bjartsýnn á virkni nýrra bóluefna og telur að heilsugæslan hér á landi hafi burði til að bólusetja tugþúsundir manna á einum degi. Hann segir allt stefna á að við verðum laus undan oki veirunnar næsta vor.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Síbrotamaður dæmdur fyrir húsbrot, brot gegn nálgunarbanni og margt fleira – Trylltist þegar hann sá fötin sín úti í plastpoka

Síbrotamaður dæmdur fyrir húsbrot, brot gegn nálgunarbanni og margt fleira – Trylltist þegar hann sá fötin sín úti í plastpoka
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Möguleiki á eldingaveðri í kvöld og til morguns

Möguleiki á eldingaveðri í kvöld og til morguns
Fréttir
Í gær

Segja að Leigufélag aldraðra hafi orðið „fórnarlamb óráðvandra athafnamanna sem fyrst og fremst var umhugað um að þyngja eigin pyngju“

Segja að Leigufélag aldraðra hafi orðið „fórnarlamb óráðvandra athafnamanna sem fyrst og fremst var umhugað um að þyngja eigin pyngju“
Fréttir
Í gær

Frakkar slegnir vegna réttarhalda yfir lækni sem var hroðalegur barnaníðingur – Ætluð fórnarlömb um 300

Frakkar slegnir vegna réttarhalda yfir lækni sem var hroðalegur barnaníðingur – Ætluð fórnarlömb um 300
Fréttir
Í gær

Jóhannes stjörnunuddari gjaldþrota

Jóhannes stjörnunuddari gjaldþrota
Fréttir
Í gær

Hilmar Þór segir Trump þann eina sem geti bundið enda á stríðið í Úkraínu – Þetta er ástæðan

Hilmar Þór segir Trump þann eina sem geti bundið enda á stríðið í Úkraínu – Þetta er ástæðan