Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag. Haft er eftir Óskari að búið sé að ræða við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu um ýmsar útfærslur á bólusetningunni. Hugsanlegt er að kennslustofur, íþróttahús og skimunarhúsið við Suðurlandsbraut verði notuð við bólusetningar.
„Ef við tökum dæmi um kennslustofu, þá væri hægt að bólusetja hátt í 20 manns í hverri stofu á klukkutíma. Ef við gefum okkur það að bólusett væri í 10 klukkustundir þá myndi það þýða 200 manns. Ef við segjum að það séu 50 kennslustofur í einhverjum skóla þá eru það strax 10 þúsund manns sem hægt er að bólusetja á einum degi þar,“ er haft eftir Óskari.
Heilbrigðisstofnanir á hverjum stað munu sjá um framkvæmd bólusetninga en umfangsmesta framkvæmdin verður á höfuðborgarsvæðinu. Morgunblaðið hefur eftir Óskari að ef úr nægu bóluefni væri að moða væri hægt að bólusetja alla sem það vildu á nokkrum dögum.
Í vikunni verða samningar við Pfizer um kaup á bóluefni undirritaðir. Reiknað er með að bóluefni fyrirtækisins fái markaðsleyfi þann 29. desember og um leið kemur skammtur hingað til lands sem mun duga fyrir um 115 þúsund manns. Það ætti því að vera hægt að hefja bólusetningu af fullum krafti strax í upphafi næsta árs.