fbpx
Mánudagur 03.mars 2025
Fréttir

Ernir missir flugið fyrir vestan – Atvinnurekendur lýsa yfir þungum áhyggjum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 12. nóvember 2020 12:35

Mynd: Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Félag atvinnurekenda á sunnanverðum Vestfjörðum lýsir yfir þungum áhyggjum af því að flugfélagið Ernir hefur misst flug á Bíldudal eftir nýtt útboð. Í erindi sem félagið hefur sent til opinberra aðila og fjölmiðla er staðhæft að nýr aðili sem var með lægsta tilboð í útboðinu muni veita verri þjónustu enda sé sá aðili með eldgamlar flugvélar í flota sínum. Segir félagið tíðindin vera reiðarslag fyrir svæðið:

„Samtök atvinnurekenda á sunnanverðum Vestfjörðum (SASV) lýsa yfir þungum áhyggjum vegna skyndilegra frétta af innanlandsflugi til og frá Bíldudal. Fréttirnar bárust að morgni 10. nóvember um að nýtt félag á að hefja flug á Bíldudal 16. nóvember nk. Flugfélagið Ernir hefur þjónað Vestfirðingum í 50 ár við afar krefjandi aðstæður og nýlegar fréttir um að nú eigi félagið skyndilega að hverfa af vettvangi eftir umdeilt útboð er reiðarslag fyrir svæðið. Ernir hafa veitt afbragðs þjónustu og eru með flugvélar sem henta þessari þjónustu afar vel. Í staðinn á að bjóða helmingi minni flugvél sem búin er jafnþrýstibúnaði og 50 ára gamall Twin Otter án jafnþrýstibúnaðs. Í samanburði er þetta stökk niður á við í þjónustustigi og með ólíkindum að í útboði þar sem munar svo litlu sem raun ber vitni skuli þjónustustig og gæði flugflotans ekki hafa meira að segja.“

Vegagerðin hefur samið við Norlandair um áætlunarflug til Bíldudals og Gjögurs. SAVS bendir á að í útboðum í vegagerð sé lægsta tilboði ekki alltaf tekið og huga þurfi að þjónustu og öryggi við atvinnulíf á svæðinu hvað fraktflutninga snertir. Afgangurinn af erindinu er eftirfarandi:

„Í útboðum í vegagerð er lægsta tilboði ekki alltaf tekið eins og raun ber vitni í nýlegu útboði Vegagerðarinnar. SASV bendir á að fraktflug s.s með varahluti fram og til baka, sýni frá fyrirtækjunum, framleiðsluafurðir og ýmislegt annað sem mikilvægt er að komist á milli staða með litlum fyrirvara er risavaxið atriði fyrir atvinnulífið á sunnanverðum Vestfjörðum. Með þeim flugflota sem boðið verður upp á er ekki mögulegt að sinna þessari mikilvægu þjónustu sem atvinnulífið getur ekki verið án.

Ekki sér fyrir endann á óboðlegri þjónustu á sunnanverðum Vestfjörðum. Vegir á svæðinu og inn á það eru meira og minna ónýtir. Vetrarþjónusta hefur verið í lamasessi miðað við þá umferð og þá sérstaklega verðmæta þungaumferð sem er um svæðið. Nýlega tókst að koma í veg fyrir að nýjum snjóblásara væri skipt út fyrir gamlan snjóblásara til að þjónusta svæðið. Ferjan yfir Breiðafjörð er eldgömul og getur stoppað hvenær sem er með tilheyrandi áhættu. Nú eiga sunnanverðir Vestfirðir að sætta sig við minni og eldgamlar flugvélar í stað þeirra sem nú þjónusta svæðið. Á sama tíma og mikill uppgangur hefur verið í atvinnulífinu á svæðinu undanfarin ár og útflutningstekjur margfaldast og eru orðnar þær hæstu per íbúa á landinu, getur stjórn SASV ekki samþykkt svona vinnubrögð og mótmælir þessari ráðstöfun harðlega.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Forstjóri Byggðastofnunar svarar því hvar fólki finnst best að búa

Forstjóri Byggðastofnunar svarar því hvar fólki finnst best að búa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dilja Mist segir skoðanir sínar umbúðalaust í 3 mínútur

Dilja Mist segir skoðanir sínar umbúðalaust í 3 mínútur