Jónína Sigurðardóttir, foreldri barns við Fossvogsskóla, segir að ólýsanlega erfitt hafi verið að standa í stappi við Reykjavíkurborg vegna langvarandi mygluvandamála í húsnæði Fossvogsskóla sem hafi valdið nemendum þar miklum þjáningum. Jónína birtir grein á Vísir.is í tilefni þáttarins Kveiks á RÚV í gærkvöld þar sem fjallað var um mygluvandamál.
Jónína sakar borgaryfirvöld um hræsni og segir að hagur barna hafi ekki verið hafður að leiðarljósi í viðbrögðum við mygluvandamálum í Fossvogsskóla:
„Í þættinum í gær var rakavandamál í Fossvogsskóla sérstaklega tekið fyrir. Ég og aðrir foreldrar barna í skólanum höfum gert það sem í okkar valdi stendur til þess að þrýsta á að eitthvað verði gert. Við eigum það öll sameiginlegt að eiga börn sem hafa veikst mikið sökum húsnæðisins, farið hefur verið í framkvæmdir sem hafa ekki skilað tilskildum árangri því börnin okkar eru enn veik. Við höfum því neyðst til þess að fara í fjölmiðla og opinbera okkur og börnin okkar til þess að reyna að knýja í gegn að eitthvað verði gert því það trúir okkur enginn. Börnin okkar fá óstjórnlega höfuðverki og blóðnasir, útbrot, beinverki, miklir andlegir erfiðleikar, öndunarerfiðleikar og svo lengi mætti telja. Þau eiga það öll sameiginlegt að engin skýring hefur fundist á heilsubresti þeirra og þau lagast öll þegar þau eru ekki í skólanum og fjöldi þeirra barna sem finna fyrir einkennum og veikjast stækkar með hverri viku.“
Jónína segir að kennurum barnanna hafi verið bannað að segja foreldrum frá því hvernig ástandið sé í kennslustofum og foreldrar hafi alls staðar komið að lokuðum dyrum. „Þegar við höfum reynt að spyrjast fyrir hjá borgaryfirvöldum um hvað eigi að gera hefur okkur verið bent á að það sé vænlegast að við tökum börnin okkar úr skólanum sem hljómar helst eins og leið til þess að þagga niður í okkur.“
Jónína segir að skólastjóri skólans hafi í nýlegu samtali við sig dregið í efa að eitthvað sé raunverulega að húsnæðinu þar sem mælingar hafi gefið í skyn að húsnæðið sé í lagi, sem sé ekki rétt.
Þá segir Jónína að miðað við það sem kom fram í Kveiks-þættinum hafi mælingar í Fossvogsskóla byggst á vanþekkingu. Enn fremur slær það hana að mælingaraðilar hafi verið beðnir um að hagræða niðurstöðum:
„Annað sem situr eftir hjá mér eftir þátt gærkvöldsins er að það var gefin góð og skýr mynd á muninum á myglu og gró. Í samtali við Sylgju Dögg Sigurjónsdóttir, fagstjóra hjá Eflu, kemur fram að gró myglu sé alls staðar. Gróin dreifist auðveldlega og hratt en fer ekki að valda skaða fyrr en það kemur raki og þá vaxa gróin upp í myglusveppi. Þetta virðast þeir sérfræðingar sem Reykjavíkurborg hefur ráðið í verkið ekki gera sér grein fyrir. Nýverið kom út skýrsla frá Verkís um stöðuna í húsnæðinu þar sem ítrekað er talað um að það sé verið að taka sýni og mæla gró. Gró sem finnst alls staðar. Það segir sér sjálft að slíkar mælingar skili ekki árangri og segi ekkert til um raunverulega stöðu húsnæðisins.
Að lokum þótti mér sláandi að heyra það í þættinum í gær að Sylgja sagði að hún og samstarfsfólk hennar hafi oft verið beðið um að hagræða niðurstöðum rannsókna þannig að þær komi ekki fram, sem hún segir að þau hafi ekki gert. Rétt eins og vandamálið muni einfaldlega hverfa ef það komi ekki fram í skýrslum, staðan er hins vegar sú að vandamál af þessum toga stækkar bara og veldur meiri skaða ef ekki er brugðist hratt og rétt við. Ég er algjörlega gáttuð á hræsni borgaryfirvalda og vona að farið verði eins fljótt og mögulegt er í að taka rétt sýni og forða börnum og starfsfólki frá því að veikjast enn frekar.“