fbpx
Þriðjudagur 05.nóvember 2024
Fréttir

Þetta eru nýju reglurnar sem gilda á höfuðborgarsvæðinu frá og með deginum í dag

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 7. október 2020 03:57

Sumir þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru sagðir ósáttir við nýjustu ráðstafanirnar sem Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, samþykkti.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í dag taka nýjar og hertar reglur um samkomutakmarkanir á höfuðborgarsvæðinu gildi. Samkomutakmarkanir sem voru kynntar á mánudaginn gilda áfram óbreyttar utan höfuðborgarsvæðisins. Takmarkanirnar gilda til 19. október. Með höfuðborgarsvæðinu er átt við Reykjavík Seltjarnarnes, Mosfellsbæ, Kjósarhrepp, Hafnarfjörð, Garðabæ og Kópavog. En hverjar eru þessar hertu reglur?

Þær fela eftirfarandi í sér:

  • Nálægðarmörk 2 metrar: Nálægðarmörk verða 2 metrar. Það á einnig við í öllum skólum, að undanskildum börnum fæddum 2005 og síðar.
  • Þjónusta sem krefst snertingar eða mikillar nándar: Starfsemi og þjónusta sem krefst snertingar eða ef hætta er á snertingu milli fólks eða mikillar nálægðar er óheimil. Þetta á við svo sem um hárgreiðslustofur, snyrtistofur, nuddstofur, húðflúrunarstofur og aðra sambærilega starfsemi. Framangreint á þó ekki við um starfsemi heilbrigðisstarfsfólks við veitingu heilbrigðisþjónustu en í þeim tilvikum er skylt að nota andlitsgrímur.
  • Verslanir: Viðskiptavinum verslana verður skylt að bera andlitsgrímur ef ekki er hægt að tryggja a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum.
  • Sund- og baðstaðir: Sund- og baðstöðum verður lokað.
  • Íþróttir og líkamsrækt innandyra óheimil: Líkamsrækt, íþróttastarf og sambærileg starfsemi sem krefst snertingar eða hætta er á snertingu á milli fólks eða mikilli nálægð, eða þar sem notkun á sameiginlegum búnaði getur haft smithættu í för með sér er óheimil innandyra.
  • Íþróttir utandyra: Íþróttir utandyra eru heimilar en áhorfendur á íþróttaviðburðum utandyra skulu ekki vera fleiri en 20 í hverju rými. Áhorfendur skulu bera grímu og sitja í merktum sætum.
  • Sviðslistir: Á viðburðum svo sem í leikhúsum, kvikmyndahúsum, á tónleikum o.þ.h. mega gestir ekki vera fleiri en 20 að hámarki. Gestir skulu allir bera grímu og sitja í merktum sætum.
  • Veitingastaðir: Þeir veitingastaðir sem mega hafa opið (krár og skemmtistaðir skulu vera lokaðir) mega ekki hafa opið lengur en til kl. 21.00.

Fyrir börn fædd 2005 og síðar gildir eftirfarandi:

  • Skólasund: Þrátt fyrir lokun sundstaða er heimilt að halda úti skólasundi fyrir börn fædd 2005 og síðar.
  • Íþrótta- og æskulýðsstarfsemi og tómstundir barna sem eru fædd 2005 og síðar er  heimil.
  • Keppnisviðburðir: Keppnisviðburðir barna sem fædd eru 2005 og síðar þar sem hætta er á blöndun hópa umfram hefðbundnar æfingar eru óheimilir.
  • Nálægðar- og fjöldamörk: Líkt og áður gilda nálægðar- og fjöldamörk ekki um börn fædd 2005 og síðar.

Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Viðbragð Veðurstofunnar virkjað í nótt: Töldu að kvikuhlaup gæti verið að hefjast

Viðbragð Veðurstofunnar virkjað í nótt: Töldu að kvikuhlaup gæti verið að hefjast
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Gat ekki tjáð sig öðruvísi en með öskrum og svívirðingum

Gat ekki tjáð sig öðruvísi en með öskrum og svívirðingum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Netárás tók endurritun internetsins úr sambandi

Netárás tók endurritun internetsins úr sambandi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þessi töluðu minnst á Alþingi á kjörtímabilinu

Þessi töluðu minnst á Alþingi á kjörtímabilinu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Flýja til Íslands á meðan forsetakosningarnar standa yfir – „Það verður svo mikill hávaði og svo mikil ringulreið“

Flýja til Íslands á meðan forsetakosningarnar standa yfir – „Það verður svo mikill hávaði og svo mikil ringulreið“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ný könnun: Viðreisn nartar í hælana á Samfylkingunni – Píratar og VG í klandri

Ný könnun: Viðreisn nartar í hælana á Samfylkingunni – Píratar og VG í klandri