fbpx
Miðvikudagur 12.mars 2025
Fréttir

Sjöfn Þórðar hefur leik á Hringbraut með þættina Matur og Heimili – Lífstíll, hönnun og arkítektúr í forgrunni

Heimir Hannesson
Sunnudaginn 11. október 2020 18:21

mynd/hringbraut

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hringbraut kynnir til leiks á morgun fyrsta þátt Matar og heimilis, í umsjón Sjafnar Þórðardóttur. Þættirnir verða á dagskrá í vetur á mánudögum klukkan 20:30. Segir á heimasíðu Hringbrautar að þættirnir verða lifandi með matargerð og bakstur í bland við innanhússarkítektúr, hönnun og fjölbreyttan lífsstíl í forgrunni.

Í þáttunum hyggst Sjöfn heimsækja lifandi heimili ólíkra einstaklinga og kynna fyrir áhorfendum lífsstíl þeirra, heimilisstíl, hönnun. Þá segir að íslenskri hönnun, list og handverki verður gert hátt undir höfði.

Hefur vefur Hringbrautar eftir Sjöfn: „Það er ávallt gaman að koma inn á heimili þar sem persónuleiki þeirra sem þar býr skín í gegn og fær að njóta sín til fulls,“ Á mánudaginn næstkomandi er fram undan innlit í stórfenglega loft íbúð við Hverfisgötuna þar sem innanhússarktitektin Sólveig Andrea Jónsdóttir sá um hönnun og framkvæmd í samráði við húsráðendur með glæsilegri útkomu.

Sjöfn er sjálf mikill matgæðingur og sælkeri og verður matur í hávegum hafður: „Matur er mannsins megin og það eru orð sönnu, hjarta heimilisins slær oftar en ekki í eldhúsinu og þar verja fjölskyldur oftar en ekki sínu bestu samverustundum,“ segir Sjöfn.

Súkkulaðiframleiðandinn Omnom er heimsóttur í fyrsta þætti Sjafnar.

Sjöfn segir jafnframt: „Fróðlegt er að fylgjast með ólíkum bakstri og matargerð en eitt sem er sammerkt með flestum er að þeir leggja mikið upp úr því að gera kökurnar sínar og matinn fallegan enda borðum við flest öll fyrst með augunum, svo með munninum.“ Hún mun einnig heimsækja fjölbreytta flóru sælkeraverslana, kaffihúsa og veitingastaða, að því er fram kemur í kynningarefni þáttanna. Að auki mun hún kynna sér hefðir og siði í matargerð ólíkra menningarheima. Íslensk uppskera og afurðir beint frá býli verða í forgrunni enda er gróskan á þeim markaða óþrjótandi og kemur sífellt á óvart. „Fram undan er skemmtilegur og gefandi vetur á skjánum enda kunnum við Íslendingar að njóta þess að fegra heimilin og bjóða upp á sælkerakræsingar að ýmsu tagi þar sem upplifunin gleður hjarta og sál,“ segir Sjöfn að lokum.

Fyrsti þáttur vetrarins er á dagskrá hringbrautar annað kvöld klukkan 20:30, og verður framvegis á mánudögum í vetur á þeim tíma. Þættirnir verða svo birtir á vef Hringbrautar, hringbraut.is, á þriðjudögum. Sjá má kynningarmyndband fyrir þættina hér að neðan.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Harpa segir sundrungu ríkja innan VR og skýtur föstum skotum á sitjandi formann

Harpa segir sundrungu ríkja innan VR og skýtur föstum skotum á sitjandi formann
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Manndrápsmálið: Þrír taldir vera höfuðpaurar í málinu

Manndrápsmálið: Þrír taldir vera höfuðpaurar í málinu
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Andstaðan við Elon Musk eykst innan MAGA-hreyfingarinnar

Andstaðan við Elon Musk eykst innan MAGA-hreyfingarinnar
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

„Vesturlönd hafa tækifæri til að knésetja Rússland“

„Vesturlönd hafa tækifæri til að knésetja Rússland“