fbpx
Föstudagur 14.mars 2025
Fréttir

Ungur og heilbrigður Íslendingur barðist fyrir lífi sínu vegna Covid-19 – Hélt að hann myndi bara fá kvef

Máni Snær Þorláksson
Þriðjudaginn 6. október 2020 21:00

My

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þú getur verið heppin og fengið covid, smá flensu og jafnað þig á viku eða tveimur. Þú getur svo verið óheppinn og fengið covid og endað á spítala eða það sem er verra með eftirköst sem gætuð haldið þig frá vinnu svo mánuðum skiptir.“

Svona hefst færsla sem William Thomas Möller skrifar og birti á Facebook-síðu sinni en Willam veitti DV góðfúslegt leyfi til að fjalla um færsluna. Þú getur svo verið óheppinn og fengið covid og endað á spítala eða það sem er verra með eftirköst sem gætuð haldið þig frá vinnu svo mánuðum skiptir. „Svo er það þriðji kosturinn og það er að þurfa að berjast fyrir lífinu og tefla við dauðann.“

William deilir mynd af sér með færslunni sem sjá má hér fyrir neðan:

„Myndina tók ég nokkrum klukkustundum áður en læknarnir sögðu mér að ég þyrfti að taka þriðja kostinn. Fram að því hafði ég haldið að ég væri ungur, heilbrigður með enga undirliggjandi sjúkdóma og ef ég fengi veiruna þá myndi ég bara fá smá kvef og svo halda áfram með lífið. Ég lifði sem betur fer af, þökk sé frábæru starfsfólki landspítalans, fólki sem mun örugglega þurfa að díla við kulnun og útbrennslu í starfi eftir nokkur ár vegna álagsins núna. Sem mun svo valda skerðingu á aðgengi okkar að einni bestu heilsugæslu í heiminum.“

„Þetta hefur ekki verið auðvelt“

Þá talar William um eftirköst veirunnar. „Ég er byrjaður að hlaupa aftur, hægt en ég er þakklátur fyrir að eiga möguleika á að koma líkamanum mínum í fyrra horf. En ég er samt ennþá að díla við afleiðingar veikinda minna,“ segir hann. „Líkaminn minnir mig stöðugt á að ég hafi verið með túbu niður í lungu og er ég stöðugt að kyngja eða fyllast hræðslu um að ná ekki andanum. Ég er búinn að vera að díla við ofsakvíða og streitu vegna ofsjóna og martraða sem ég upplifði á spítalanum.“

Sem betur fer hefur það farið minnkandi hjá William en þegar verst var þá var hann með stöðugan skjálfta í maganum, verki í brjóstunum, verki sem eru ennþá en fara sem betur fer minnkandi,“ segir hann. „Ég upplifi oft í viku að ég missi skin á raunveruleikanum og missi fókus á hlutum framan fyrir mig. Ég upplifi oft á viku að ég hugsa hvort ég hafi dáið og ég sé staddur í öðrum heimi. Ég upplifi oft þegar allir í kringum mig eru með grímur að ég haldi að ég sé dáinn.“

Í dag byrjaði William hjá sálfræðingi og svo byrjar hann hjá sjúkraþjálfara á föstudaginn. „Sálrænum eftirköstum fer fækkandi með hverjum deginum en þetta hefur ekki verið auðvelt. En þetta verður auðvelt. Ég mun fljótlega hætta að láta þessi veikindi skilgreina mig og ná völdum á hausnum í mér aftur.“

„Sleppum því að taka óþarfa áhættu“

William segist vera að skrifa þetta sem einstaklingur sem telur sig hafa sloppið nokkuð vel með eftirköst miðað við það sem hann hefur lesið eftir aðra. „Með þessum pósti vil ég hvetja alla til að fara varlega. Þegar einhver talar um að þetta sé bara flensa sem þú hristir af þér þá er það bara einn af þremur möguleikum sem geta hent þig og það er engin leið til að vita hvaða möguleikum þú verður fyrir,“ segir hann.

„Þegar einhver segir að við eigum að leyfa unga fólkinu að verða veikt og ná hjarðofnæmi og þú ákveður að hætta við að fara varlega þá máttu hugsa um að þú gætir lent í því að fá eftirköst sem gætu skert lífsgæði þín næstu 6-12 mánuði, jafnvel til frambúðar. Við vitum ekki ennþá langtíma áhrif veirunnar.

Þegar einhver segir að það skerði frelsið þitt að þurfa að vera heima og sleppa nokkrum djömmum þá er það ekki rétt. Frelsisskerðing er það sem forfeður okkar lifðu við, að hvern einasta dag voru þeir að berjast fyrir lífi sínu og þegar þeir komu heim til sín þá höfðu þeir enga afþreyingu og ekki einu sinni ljós í vistaverum sínum.“

Að lokum biður William fólk um að fara varlega og hlusta á sóttvarnalækni. „Léttum undir með heilbrigðisstarfsfólkinu og sleppum því að taka óþarfa áhættu með líkama okkar sem kemur bara einnota.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Árni deilir myndbandi af sænskri matarkörfu sinni – Hvað heldur þú að matarinnkaupin kosti?

Árni deilir myndbandi af sænskri matarkörfu sinni – Hvað heldur þú að matarinnkaupin kosti?
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Boltinn er hjá Rússum – Er líklegt að þeir samþykki vopnahlé?

Boltinn er hjá Rússum – Er líklegt að þeir samþykki vopnahlé?
Fréttir
Í gær

Tilkynna auglýsingu smálánafyrirtækis um fría Tenerife ferð – „Okkur finnst þetta vera siðlaus markaðssetning“

Tilkynna auglýsingu smálánafyrirtækis um fría Tenerife ferð – „Okkur finnst þetta vera siðlaus markaðssetning“
Fréttir
Í gær

Samband íslenskra sveitafélaga semur við Syndis

Samband íslenskra sveitafélaga semur við Syndis