Nokkur atriði í fyrirlestrinum vöktu upp spurningar hjá nemandanum sem tjáði sig um málið á samfélagsmiðlinum Twitter. Það fyrsta sem nemandinn nefndi var að Freydís talaði um að kynhneigð væru oft flokkuð í þrjá flokka, gagnkynhneigð, samkynhneigð og tvíkynhneigð.
Ástæðan fyrir því að þetta vakti athygli nemendans er líklega sú að undanfarið hefur umræða um kynhneigðir verið öðruvísi, talað er um að kynhneigðir séu mun fleiri.
Annað sem vakti athygli nemendans var að Freydís talaði um áhrif streitu mæðra á meðgöngu. „Þegar mæður upplifa mikla streitu á miðjumánuðum meðgöngu þá er líklegra, ef að um karlkyns fóstur er að ræða, að það verði samkynhneigt,“ sagði Freydís í fyrirlestrinum sem um ræðir.
Þá vakti það einnig athygli nemendans að Freydís hafi sagt að flestir „stelpulegir“ strákar verði samkynhneigðir. „Ein rannsókn sýndi að stór hluti drengja sem voru álitnir stelpulegir á barnsaldri verða samkynhneigðir eða 75% þeirra,“ sagði Freydís.
„Henni gengur gott eitt til en ákvað því miður að nota mjög gamlar rannsóknir og gömul gögn. Virðist ekki hafa kynnt sér neitt hvað hefur gerst í þessum fræðum síðastliðin 20-30 ár. sem er jú MIKIÐ. Útkoman finnst mér jaðra við að vera skaðleg,“ sagði nemandinn um fyrirlesturinn á Twitter.
Eftir að nemandinn vakti athygli á þessu á samfélagsmiðlinum hafa margir tjáð sig um þetta. „Já neinei þetta er ekki í lagi,“ sagði einn notandi samfélagsmiðilsins. „Þetta jaðrar ekki við að vera skaðlegt. Þetta ER skaðlegt! Háskólinn vill varla láta kenna sig við svona fornfræði á þessu sviði,“ sagði annar. „Úff, alltaf skellur að komast að því að ég sé ekki til og kynhneigðin mín ekki heldur,“ sagði svo enn annar notandi.
Þá var nemandinn hvattur af tveimur notendum til þess að senda inn kvörtun vegna fyrirlestursins. „Mér varð eiginlega óglatt!“ sagði svo annar notandi.
Ekki náðist í Freydísi Jónu við gerð fréttarinnar.