fbpx
Sunnudagur 16.mars 2025
Fréttir

Móður 8 ára íslensks drengs brugðið: Bekkjarfélagar töluðu um að hengja son hennar og hengdu snöru upp í tré

Tobba Marinósdóttir
Laugardaginn 3. október 2020 08:00

Myndin er samsett og tengist fréttinni ekki beint. Mynd til vinstri: Fréttablaðið/Ernir Eyjólfsson - Mynd til hægri: Pixabay

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Móðir átta ára drengs segist hafa orðið fyrir miklu áfalli þegar syni hennar var hótað hengingu af bekkjarbræðrum sínum. Börnin gerðu snöru úr reipi og hengdu upp í tré.

Móðir drengsins deildi frásögn sinni á samfélagsmiðlum í vikunni en henni og fjölskyldu drengsins var illa brugðið. Móðirin segist hafa fengið símtal frá kennara drengsins sem greindi henni frá því að tveir bekkjarbræður hans hefðu gert snöru úr reipi og hengt upp í tré. Ætlunin var svo að setja hana um háls drengsins.

Móðirin segist vera slegin yfir því að svo ung börn hreinlega viti hvað það sé að hengja fólk. „Sem betur fer hljóp hann í burtu og á þessu var tekið strax af kennurum og talað um alvarleika málsins við þá stráka sem áttu hlut að málinu og allan bekkinn.“

Móðirin segir kennarana og skólann hafa tekið vel á málinu og drengurinn hennar er rólegur yfir þessu og upplifir ekki eftirköst. Sonur hennar, sem er átta ára gamall, hefur ekki orðið fyrir einelti eða alvarlegri stríðni áður. Hún segist ekki vita hvort um óvitaskap var að ræða. Mikilvægt sé að vera vakandi yfir hugmyndum barna sem þekkja oft ekki alvarleika þess sem þau gera.

„Ekki sjálfsagt að börn átti sig á að dauðinn sé óafturkræfur“

Gabríela Bryndís Ernudóttir, sálfræðingur hjá Sálfræði- stofu Reykjavíkur, segist ekki geta tjáð sig um umrætt mál eða einstök mál en almennt geri börn sér ekki endilega grein fyrir því hvað það þýðir að deyja eða hversu endanlegt það er.

„Ég held að yfirleitt viti börn, ef allt er í lagi hjá barninu, hvað er skaðlegt og hvað er ekki skaðlegt og vilji ekki valda skaða gagnvart öðrum. Upp að ákveðnu marki vita þau hvað má og hvað má ekki gera. Hins vegar eru börn ekki endilega farin að gera sér grein fyrir muninum á lífi og dauða eða hvað það þýðir að deyja. Það er ekki sjálfsagt að börn átti sig á að dauðinn sé óafturkræfur.“

Hún segir að almennt séð séu börn ekki að hóta alvarlegum líkamsmeiðingum. Ef svo er, sé það viðvörunarmerki. „Auðvitað getur myndast hópæsingur þar sem eitt leiðir af öðru en börn sem sýna grófa ofbeldishegðun eru oft sjálf með áföll sem valda því að þau sýna mjög ofbeldishneigða hegðun. Þá er mikilvægt að það sé kannað hvort börnin sem gera slíka hluti séu örugg í sínu umhverfi,“ segir Gabríela Bryndís.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einn handtekinn til viðbótar vegna morðrannsóknar á Suðurlandi

Einn handtekinn til viðbótar vegna morðrannsóknar á Suðurlandi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Árni deilir myndbandi af sænskri matarkörfu sinni – Hvað heldur þú að matarinnkaupin kosti?

Árni deilir myndbandi af sænskri matarkörfu sinni – Hvað heldur þú að matarinnkaupin kosti?