fbpx
Laugardagur 01.mars 2025
Fréttir

Sigurlaug orðlaus eftir heimsókn á Landspítalann: Sárþjáð í þrettán klukkutíma – „Þetta mun ekki enda vel“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 10. janúar 2020 09:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurlaug Þuríður Ragnarsdóttir, markaðsfræðingur hjá tímaritinu Icelandic Times, veiktist alvarlega á dögunum og fór upp á Bráðadeild Landspítalans þar sem við tók óhugnanlega löng bið að hennar sögn. Sársaukinn sem hana hrjáði gerði þó biðtímann í hennar huga átakanlegri og bætti óloft, bilanir og þrengsli í biðrými ekki úr skák.

Sigurlaug rifjar upp þessa örlagaríku nótt og segir í samtali við DV að mikilvægt sé að fólk geri sér grein fyrir því neyðarástandi sem ríkir í heilbrigðismálum landsins, ekki síst á Landspítalanum. „Þetta er lífshættulegt ástand þarna,“ segir hún.

Sigurlaug kveðst hafa verið látin sitja og bíða á hörðum stól í anddyri bráðamóttökunnar í miðju nýrnasteinakasti. Hún segist hafa kastað upp með reglulegu millibili og hafði verið í níu klukkustundir án vatns eða matar.

„Sjálfsalar voru ýmist tómir eða bilaðir, lyftur bilaðar, óloft og þrengsli, veikt og slasað fólk í rúmum um alla ganga, oft klesst saman,“ segir Sigurlaug. „Ég fékk lokins hægindastól, hitapoka og lyfjameðhöndlun síðustu þrjár klukkustundirnar, þar sem erlendir læknar sáu að hér var alvara á ferð og ég komst loksins heim eftir þrettán klukkustundir.“

Sigurlaug segist ekki eiga orð til að lýsa ástandinu hjá deildinni og spítalanum almennt. „Ég get vel vitnað um að starfsfólk Landspítalans er að niðurlotum komið og á heiður skilinn fyrir að halda þetta hörmungarástand út,“ segir hún og bætir við: „Þetta mun ekki enda vel. Það sér hver heilvita maður.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Þrautaganga prests á Suðurnesjum – Missti mannorðið eftir kæru fyrir kynferðisbrot og hefur barist fyrir miskabótum

Þrautaganga prests á Suðurnesjum – Missti mannorðið eftir kæru fyrir kynferðisbrot og hefur barist fyrir miskabótum
Fréttir
Í gær

Meintur banamaður Geirfinns nafngreindur í 13. kaflanum sem hefur lekið á netið

Meintur banamaður Geirfinns nafngreindur í 13. kaflanum sem hefur lekið á netið
Fréttir
Í gær

Afgreiðslumaður í verslun tilkynnti hegðun viðskiptavinar til barnaverndaryfirvalda – Sagður hafa slegið son sinn í innkaupakerru

Afgreiðslumaður í verslun tilkynnti hegðun viðskiptavinar til barnaverndaryfirvalda – Sagður hafa slegið son sinn í innkaupakerru
Fréttir
Í gær

Kristján Sívarsson fyrir dóm sakaður um að pynta konu í tíu daga – Notaði nál, hníf, hamar, járnrör, spýtu og hleðslutæki

Kristján Sívarsson fyrir dóm sakaður um að pynta konu í tíu daga – Notaði nál, hníf, hamar, járnrör, spýtu og hleðslutæki
Fréttir
Í gær

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks vill ekki CODA Terminal á Vellina – „Orðið „óvissa“ kemur fyrir 47 sinnum í skýrslunni“

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks vill ekki CODA Terminal á Vellina – „Orðið „óvissa“ kemur fyrir 47 sinnum í skýrslunni“
Fréttir
Í gær

Fiskikóngurinn hefur ekkert að fela -„Það skíta allir upp á bak, bara spurning hvernig þú skeinir þér, ég er mjög vel skeindur“

Fiskikóngurinn hefur ekkert að fela -„Það skíta allir upp á bak, bara spurning hvernig þú skeinir þér, ég er mjög vel skeindur“