fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Fréttir

Jón vill nýja nálgun á COVID – „Það er ekki hægt að slökkva á samfélagi“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 26. september 2020 11:53

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Þórisson, ritstjóri Fréttablaðsins, veltir fyrir sér í leiðara blaðsins í dag hvort of langt sé gengið í viðbrögðum gegn COVID-19. Það sé ekki hægt að búa við það til lengdar að samfélagið sé lokað. Hann segist ekki gera lítið úr langtímaafleiðingum veirunnar fyrir suma sem smitast en þeir séu þó hlutfallslega fáir. Afleiðingarnar af samkomutakmörkunum og lokun landsins geti verið miklu alvarlegri. Aleiðingar af viðbrögðum við veirunni séu að valda miklu meiri skaða en veiran sjálf. Jón skrifar:

„Líkur eru á að bóluefni, hinn stóri snagi sem við öll höfum hengt okkar hatt á, sé lengra undan en við vonuðum. Það er ekki hægt að slökkva á samfélagi. Við getum lokað börum og við getum lokað skemmtistöðum. En við getum ekki búið við að samfélagi manna sé lokað hér. Það eru vissulega hagsmunir fólgnir í því að spyrna við þegar heilbrigðisvá steðjar að en öllu má ofgera.

Það er alls ekki gert lítið úr þeim langvarandi eftirköstum sem þeir sem veikjast hafa lent í, en það er ekki fjölmennur hópur af þeim rúmlega 2.500 Íslendingum sem hafa sýkst. Og það atriði eitt og sér getur ekki réttlætt allan viðbúnaðinn. Það hefur líka eftirköst að loka samfélagi, fólk missi vinnu, einangri sig.“

Jón segir að við þurfum nýja nálgun á þessi mál. Við þurfum að halda áfram að lifa:

„Sóttvarnayfirvöld hafa margítrekað að hugmyndin um veirulaust samfélag sé óraunhæf og sé ekki markmið aðgerðanna. Við þurfum að taka upp nýja nálgun. Við þurfum að breyta inntaki þess sem nefnt hefur verið að lifa með veirunni. Við þurfum með æðruleysi að halda áfram að lifa.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Diljá spyr hvort aðeins fólk með réttar skoðanir megi tala um kynbundið ofbeldi

Diljá spyr hvort aðeins fólk með réttar skoðanir megi tala um kynbundið ofbeldi
Fréttir
Í gær

Stefán Einar hraunar yfir kennaraforystuna – „Er metnaðarleysið algjört á þessum stöðum?“

Stefán Einar hraunar yfir kennaraforystuna – „Er metnaðarleysið algjört á þessum stöðum?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stingskatan Karlotta varð ólétt án maka – Meyfæðingin raungerðist þó ekki

Stingskatan Karlotta varð ólétt án maka – Meyfæðingin raungerðist þó ekki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sögðu móður sína ekki muna kennitöluna sína þegar hún gerði erfðaskrána sem tvístraði systkinahópnum

Sögðu móður sína ekki muna kennitöluna sína þegar hún gerði erfðaskrána sem tvístraði systkinahópnum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Flugi til Íslands aflýst vegna bilunar á síðustu stundu – Vélin var komin út á flugbrautina

Flugi til Íslands aflýst vegna bilunar á síðustu stundu – Vélin var komin út á flugbrautina
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gestrisni Íslendinga kom spænsku pari gríðarlega á óvart – „Þetta fólk þekkti okkur ekki neitt“

Gestrisni Íslendinga kom spænsku pari gríðarlega á óvart – „Þetta fólk þekkti okkur ekki neitt“