Í Morgunblaði dagsins birtist pistill sem hefur verið harðlega gagnrýndur. Höfundurinn er Anna Karen Jónsdóttir, en pistillinn fjallaði um Black Lives Matter-hreyfinguna, sem hefur barist fyrir mannréttindum svartra. Anna gefur þó lítið fyrir það og heldur því fram að markmið hreyfingarinnar sé að eyðileggja vestræn gildi og samfélög.
„Það liggur augum uppi að þessi hreyfing er gerð til að eyðileggja vestræn gildi og vestræn samfélög.“
Þá vill höfundur meina að hvítir beri enga ábyrgð á erfiðri samfélagslegri stöðu svartra, og gefur sterklega skyn að svartir séu líklegri en aðrir til að fremja glæpi. „Er fólk í fátækrahverfum ekki jafn ábyrgt gjörða sinna og aðrir?“ spyr Anna.
„Hvíti kynstofninn ber ekki ábyrgð á fjárhagsstöðu svarta mannsins og efnahagsleg staða fólks réttlætir hvorki rán, morð né nauðganir. Sama hvaða kynstofn fremur glæpinn.“
Þá bendlar höfundur Black Lives Matter-hreyfingunni við hryðjuverk. Auk þess virðist henni finnast það furðulegt að þeir sem styðja mannréttinda-hreyfinguna gagnrýni nasista Hitlers
„Hreyfingin snýst ekki um rasisma heldur pólitísk völd. Ef þú brennir fyrirtæki, lemur, drepur eða nauðgar öðru fólki og gjörsamlega rúsar heilu borgunum, ertu þá ekki hryðjuverkamaður?
Fólkið sem gagnrýnir nasista Hitlers er á sama tíma búið að lýsa yfir stuðningi við samtökin á samfélagsmiðlum.“
Í morgun hafa margir gagnrýnt og gert grín að grein Önnu á samfélagsmiðlinum Twitter. Nánast allir sem tjá sig þar virðast sammála um að pistillinn sé gífurlega rasískur. Auk þess eru margir á því máli að greinin sé illa skrifuð. Þá finnst mörgum fyndið að hún beri nafnið Karen, sem hefur verið notað sem staðlað grín-nafn um hvítar forréttindakonur.
Tónlistarmaðurinn Logi Pedro hefur verið duglegur að tjá sig um málefni Black Lives Matter á Íslandi. Hann segir að annaðhvort sé höfundur gervimanneskja eða hún glími við andlega erfiðleika. Samkvæmt svörum sem Logi hefur fengið virðist hið fyrra ekki vera rétt.
Þetta er svo fringe úber rasískt, og í þokkabót illa skrifað, að maður er sannfærður um að þetta sé annaðhvort:
A. gervimanneskja
eða
B. manneskja sem er að glíma við andlega erfiðleika
— Logi Pedro (@logipedro101) September 25, 2020
Auk Loga hafa grínistarnir Vilhelm Neto og Lóa Björk, bæjarfulltrúinn Guðmundur Ari, kvikmyndagerðarmaðurinn Hrafn Jónsson, og rithöfundurinn Kamilla Einarsdóttir sett út á pistilinn, auk fjölda annarra. Til að mynda hefur færsla aktívistans Hildar Lillendahl, sem var hvað fyrst að gagnrýna pistilinn, fengið mikil viðbrögð og hafa miklar umræður sprottið upp undir tísti hennar.
Ég er búinn að lesa þá setningu svona 10 sinnum og ég skil ekki neitt. Er það neikvætt fyrir málstað ef fólk sem gagnrýnir nasista Hitlers styður hann?
Átti þessi grein að birtast í einhverju öðru blaði eða er hún opinberlega að peppa nasisma?
— Guðmundur Ari (@gummari) September 25, 2020
Samsæriskenninga Queen
— Lóa Björk (@lillanlifestyle) September 25, 2020
bíddu oj las betur, þetta er ógeðslegur pistill
— Lóa Björk (@lillanlifestyle) September 25, 2020
https://t.co/IiXkeUQp77 pic.twitter.com/ujfCL8T9Ox
— Vilhelm Neto (@VilhelmNeto) September 25, 2020
Þessi grein hefur allt! George Soros, niðurrif vestrænna gilda og heilbrigt magn af grímulausum rasisma. Alslemma. https://t.co/3Flboln28z
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) September 25, 2020
Nei hvað í fjandanum…😟
— Kamilla Einarsdóttir (@Kamillae) September 25, 2020
„Fólkið sem gagnrýnir nasista Hitlers…“ pic.twitter.com/zj25cFzose
— Hildur ♀ BLM (@hillldur) September 25, 2020