Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag.
„Tilgangur dagsins er þríþættur. Það er að vekja athygli á því hversu mikilvægt er að vinna að forvörnum gegn sjálfsvígum, minnast þeirra sem hafa fallið fyrir eigin hendi sem og að styðja þá sem hafa misst ástvini,“
hefur blaðið eftir Guðrúnu. Hún sagði einnig að aldrei hafi verið mikilvægara að vekja athygli á baráttunni gegn þessum vágesti því vísbendingar séu um að einangrunin og þær félagslegu takmarkanir sem hafa fylgt faraldrinum hafi haft slæm áhrif á þá sem eru í áhættuhópum varðandi sjálfsvíg.
Bráðabirgðatölur frá ríkislögreglustjóra sýna að lögreglan hefur sinnt 30 útköllum vegna sjálfsvíga það sem af er ári. Á síðasta ári voru þau 18 en 23 árið 2018. Talan fyrir þetta ár hefur ekki verið staðfest endanlega því krufningu er ekki lokið í öllum málunum. En hér er um skýra vísbendingu að ræða um að tíðni sjálfsvíga verði óvenjulega mikil á árinu.
„Það er þekkt staðreynd að þegar mikið gengur á í þjóðfélögum þá fækkar sjálfsvígum. Til dæmis ef landslið þjóðar vinnur sigur sem sameinar alla í gleði, eða þá að samfélagið þjappar sér saman þegar einhvers konar hamfarir ganga yfir. Því virðist vera öðruvísi farið með kórónaveirufaraldurinn og margt bendir til þess að líðan þeirra sem eiga erfitt uppdráttar hafi versnað,“
er haft eftir Guðrúnu.