Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, var gífurlega óánægður með fréttatíma RÚV í gær þar sem greint var frá því að sex núverandi og fyrrverandi starfsmenn Samherja séu með réttarstöðu sakbornings í sakamáli sem héraðssaksóknari er með til rannsóknar.
Hann birti opið bréf til starfsmanna fyrirtækisins á vefsíðu Samherja þar sem hann fer ófögrum orðum um RÚV.
„Í aðalfréttatíma Ríkisútvarpsins í gærkvöldi var fyrsta frétt sjónvarpsstöðvarinnar um að sex núverandi og fyrrverandi starfsmenn Samherja væru með réttarstöðu sakbornings í sakamáli sem er til rannsóknar hjá embætti héraðssaksóknara. Í fréttinni voru birtar ljósmyndir af þeim starfsmönnum sem eiga í hlut.“
Aldrei lagst jafn lágt
Þorsteinn telur fréttina lágkúru og sé ríkisfjölmiðlinum til minnkunar.
„Ég tel óhætt að fullyrða að Ríkisútvarpið hafi aldrei lagst jafn lágt í fréttaflutningi og með þessari frétt. Í því sambandi vekur athygli að enginn annar fjölmiðill fetar þessi niðurlægingarspor Ríkisútvarpsins í myndbirtingum. Engar nýjar upplýsingar komu fram, fyrir utan þessa breytingu á réttarstöðu einstaklinganna, enda hefur margsinnis verið greint frá því að héraðssaksóknari sé með mál til rannsóknar sem tengist starfsemi dótturfélaga Samherja í Namibíu.“
Þungbær myndbirting
Furðar Þorsteinn sig á því að nú hafi áður óþekktir starfsmenn Samherja verið dregnir fram í sviðsljósið undir nafni og mynd, en slíkt sé ekki einu sinni gert í ofbeldismálum.
„Öllum má vera ljóst að myndbirting af þessu tagi er mjög þungbær fyrir þá sem eiga í hlut og fjölskyldur þeirra. Allir þeir starfsmenn, sem birtar voru myndir af í gærkvöldi, eru óþekktir og hafa aldrei eða örsjaldan verið nafngreindir í fjölmiðlum áður. Menn þurfa ekki að velkjast í neinum vafa um að eini tilgangur með þessari myndbirtingu, í annars afar innihaldsrýrri frétt, var að valda sem mestum skaða. Er þetta enn einn vitnisburðurinn um hnignun fréttastofu Ríkisútvarpsins.“
Tímasetningin ekki tilviljum
Finnst Þorsteini tímasetning þessa fréttaflutnings grunsamleg í ljósi þess að undanfarnar vikur hefur Samherji birt myndbönd þar sem fréttaflutningur Ríkisútvarpsins af Seðlabankamálinu hefur verið gagnrýndur. Eins hefur Samherji kært 11 starfsmenn RÚV til siðanefndar.
„Samherji setti fram efnislega gagnrýni á störf Ríkisútvarpsins og hefur notað lögbundna ferla vegna brota á siðareglum. Frétt gærkvöldsins er hins vegar ekkert annað en örvæntingarfull hefndaraðgerð dulbúin sem frétt og gróf aðför að saklausu fólki.“
Ætla að halda áfram að leiðrétta meintar rangfærslur
Þorsteinn minnir á það að enginn fótur sé fyrir ásökunum um saknæma háttsemi vegna starfsemi Samherja í Namibíu. Þetta muni koma skýrar fram á næstu vikum og ætlar Samherji að leiðrétta meintar rangfærslur sem í fjölmiðlum hafa birst.
„Ég kvíði ekki því máli sem er til rannsóknar en rannsókn er ekki dómur og það er óverjandi að ríkisfjölmiðillinn felli dóma yfir saklausu fólki með þeim hætti sem var reynt í gærkvöldi. Kröftug viðbrögð ykkar, í skilaboðum og tölvupósti til mín, sýna að mörgum er greinilega misboðið.
Ég vil að lokum þakka ykkur öllum fyrir ómetanlegt framlag ykkar í rekstri Samherja við krefjandi aðstæður á tímum heimsfaraldurs. Ég er auðmjúkur og þakklátur fyrir að félagið búi yfir jafn öflugum mannskap og raun ber vitni.
Með bestu kveðju,
Þorsteinn Már“