Fréttablaðið skýrir frá þessu. Steinbergur var handtekinn þegar hann mætti í skýrslutöku með skjólstæðingi sínum sem var grunaður um aðild að umfangsmiklu peningaþvætti. Steinbergur var úrskurðaður í gæsluvarðhald en sleppt þremur dögum síðar.
Í kjölfar handtökunnar gerði lögreglan húsleit á lögmannsstofu og heimili Steinbergs. Hald var lagt á mikið magn skjala og þau afrituð.
Steinbergur hafði stöðu sakbornings í 19 mánuði áður en málið var látið niður falla. Honum voru í sumar dæmdar 1,5 milljónir í miskabætur vegna málsins. í dóminum er meðal annars vísað til þess að hann hafi verið handjárnaður við handtöku og að það hafi verið óþarflega meiðandi, brot gegn trúnaðarskyldu lögmanna þar sem hald var lagt á gögn, við húsleitir, sem óheimilt er að leggja hald á. Einnig kemur fram að verulegur og óútskýrður dráttur á niðurfellingu málsins hafi falið í sér ólögmæta meingerð í hans garð.
Í kvörtun Arnars Þórs er að sögn Fréttablaðsins sérstaklega kvartað undan Birni Þorvaldssyni, saksóknara hjá embætti Héraðssaksóknara, og sjö nafngreindum lögreglumönnum. Þess er krafist að þeir verði áminntir eða látnir sæta sambærilegum viðurlögum.