fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fréttir

Gagnrýna tengingu líknarmeðferðar við dánaraðstoð í nýrri skýrslu heilbrigðisráðherra

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 1. september 2020 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrir helgi var skýrsla heilbrigðisráðherra um dánaraðstoð birt á vef Alþingis. Skýrslan var unnin að beiðni Bryndísar Haraldsdóttur þingmanns Sjálfstæðisflokksins og fleiri þingmanna. Henni er ætlað að vera grundvöllur frekari umræðu um dánaraðstoð en í skýrslunni er ekki tekin afstaða til hvort leyfa eigi dánaraðstoð eða ekki. Lífsvirðing, félag um dánaraðstoð, gagnrýnir skýrsluna og segir að meðal annars sé því haldið fram í henni að líknarmeðferð sé ein tegund dánaraðstoðar.

Fréttablaðið skýrir frá þessu en það hefur athugasemdir félagsins undir höndum. Fram kemur að í þeim komi fram að Lífsvirðing hafi „alltaf verið þeirrar skoðunar að dánaraðstoð ætti að vera hluti lífslokameðferðar“.

Í skýrslu heilbrigðisráðherra er fjallað um líknarmeðferð sem „meðferð sem hefur það markmið að lina þjáningar og bæta lífsgæði sjúklings sem greinst hefur með alvarlegan, lífsógnandi eða langvinnan sjúkdóm“ og að markmiðið með slíkri meðferð sé að draga úr vanlíðan sjúklings og styðja bestu mögulegu lífsgæði sjúklings og fjölskyldu.

Fréttablaðið hefur eftir Ingrid Kuhlman, formanni Lífsvirðingar, að það sé áhugavert að ráðuneytið haldi því fram að líknarmeðferð sé tegund dánaraðstoðar.

„Því hefur alltaf verið haldið fram að ekki sé verið að veita dánaraðstoð hér á landi svo ef þetta er dánaraðstoð þá er búið að vera að veita hana hér í mörg ár,“

er haft eftir henni en þar vísar hún til líknandi meðferðar sem veitt er á líknardeild Landspítalans. Hún gagnrýndi einnig að í skýrslunni sé látið eins og engar kannanir hafi verið gerðar á viðhorfi almennings til dánaraðstoðar en 2015 fékk Siðmennt fyrirtækið Maskínu til að kanna viðhorf almennings til dánaraðstoðar. Í könnuninni kom fram að 78% svarenda voru hlynntir því að fólk geti notið dánaraðstoðar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Árekstur þriggja bíla við Hamraborg – Dælubíll og þrír sjúkrabílar sendir á vettvang

Árekstur þriggja bíla við Hamraborg – Dælubíll og þrír sjúkrabílar sendir á vettvang
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Fjárfestar hafa sölsað undir sig tæplega 90% seldra íbúða á árinu – „Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt“

Fjárfestar hafa sölsað undir sig tæplega 90% seldra íbúða á árinu – „Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt“
Fréttir
Í gær

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður ekki Coda Terminal verkefnið við Vellina – Þyrfti aðkomu minnihlutans til að koma málinu í gegn

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður ekki Coda Terminal verkefnið við Vellina – Þyrfti aðkomu minnihlutans til að koma málinu í gegn
Fréttir
Í gær

Líkfundur á Tenerife í tengslum við leitina að Jay Slater

Líkfundur á Tenerife í tengslum við leitina að Jay Slater
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Harmleikur í hitabylgju – Gleymdi tveggja ára dóttur sinni úti í bíl með hræðilegum afleiðingum

Harmleikur í hitabylgju – Gleymdi tveggja ára dóttur sinni úti í bíl með hræðilegum afleiðingum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðrún ætlar ekki að flytja inn í Biskupsgarð – Agnes flytur út og glæsihýsið verður selt

Guðrún ætlar ekki að flytja inn í Biskupsgarð – Agnes flytur út og glæsihýsið verður selt