Í síðustu viku fór Sjana Rut, ásamt Alex bróður sínum, í viðtal í Kastljósi. Þau systkinin eru á meðal þolenda barnaníðingsins Guðmundar Ellerts Björnssonar, en hann var dæmdur fyrir alvarleg og langvarandi kynferðisbrot gegn þremur börnum, í Landsrétti í sumar, eftir að hafa verið ákærður fyrir brot gegn fimm aðilum, fjórum börnum og einum ungum pilti.
SJÁ EINNIG: Þolendur barnaníðingsins Guðmundar Ellerts stíga fram – „Þetta mun fylgja mér út lífið“
Viðtalið vakti mikla athygli, en nú hefur Sjana þakkað fyrir viðbrögðin sem þau hafa fengið. Í færslu sem birtist á Facebook-síðu Sjönu, sem hún hefur gefið DV góðfúslegt leyfi til að birta, segir hún að þetta viðtal hafi án efa verið það erfiðasta sem að hún og bróðir sinn hafi gert. Hún segir stuðninginn gríðarlega mikilvægan fyrir hvern þann sem opnar sig um kynferðisofbeldi.
„Við viljum byrja á því að þakka ykkur sem gáfuð ykkur tíma í að senda okkur skilaboð eða skrifa á vegginn og veita okkur stuðning, í kjölfar þess að við ákváðum að stíga fram í Kastljósi undir nafni og mynd varðandi Barnaverndar starfsmann sem misnotaði sér aðstöðu sína gagnvart okkur og fleiri einstaklingum þegar við vorum börn. Þetta er án efa eitt það erfiðasta sem við höfum gert í lífinu. Það er rosalega skrítin tilfinning að vita af því að allir eða flestir viti af einhverju sem maður hefur haldið útaf fyrir sjálfan sig.
Stuðningurinn er alveg ómetanlegur og hann skiptir líka gríðarlega miklu máli fyrir þolendur kynferðisofbeldis sem taka skrefið og segja frá.
Þögnin er hræðileg og þess vegna erum við svona þakklát öllum þeim sem bæði like-a, skrifa við og senda okkur skilaboð.
Það er mjög mikilvægt að láta fólk vita að þú styður það þegar það tekur svona stórt skref.
Við höfum lesið hver einustu ummæli og þær ylja manni hjartarætur og veita manni mikinn styrk, vitandi að fólk stendur með manni.“
Þá ræðir Sjana um samband sitt við bróður sinn. Þau hafi lengi verið ein á báti og því mjög náin. Hún segir að bróðir sinn hafi staðið sig eins og hetja og verið fyrirmynd.
„Það hefur margt gengið á og höfum við Alex verið mikið ein á báti, fyrir utan þessa fáu sem hafa staðið með okkur í gegnum árin og hefur það gert okkur bæði nánari og sterkari fyrir vikið. Við erum rosalega heppin með foreldra, sem hafa alltaf verið til staðar og stutt við bakið á okkur og hefur það ásamt tónlistinni bjargað lífi okkar.
Ég er líka svo ótrúlega stolt af bróður mínum, hann hefur staðið sig svo vel og er hetjan mín og fyrirmynd.“
Að lokum þakkar Sjana Kastljósi, Einari Þorsteinssyni fréttamanni Kastljóss og Sævari Þór Jónssyni lögmanni sérstaklega fyrir. Þá hvetur hún þá sem lent hafa í svakalegri lífsreynslu eins og þau að umkringja sig góðu traustverðugu fólki og að standa með sjálfum sér.
„Við viljum líka þakka Kastljósi og þá sérstaklega Einari Þorsteinssyni fyrir að taka á móti okkur með mikilli hlýju og leyfa okkur að segja okkar sögu og fyrir fagleg vinnubrögð og framkomu. Við sendum einnig sérstakar þakkir til Sævar Þór Jónsson fyrir alla hans aðkomu, aðstoð og stuðning.
Svo til ykkar sem hafið orðið fyrir svona skelfilegri lífsreynslu, reynið að umkringja ykkur fólki sem hlustar og sem þið getið treyst. En fyrst og fremst, standið með sjálfum ykkur. Þið megið endilega deila þessu.“