fbpx
Föstudagur 11.apríl 2025
Fréttir

Alma vill að stofnanir og fyrirtæki hætti þessu – „Vilt þú fjárfesta í vopnasölu og mansali?“

Jón Þór Stefánsson
Mánudaginn 31. ágúst 2020 20:40

Alma Hafsteinsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pistillinn „Vilt þú fjárfesta í vopnasölu og mansali?“ birtist á Vísi í dag. Höfundurinn er Alma Hafsteinsdóttir, fíkni og fjölskyldumarkþjálfi hjá spilavandi.is. Í pistlinum ræðir hún spilakassa og rökin sem að forsvarsmenn góðgerðasamtaka og annara stofnanna noti til að réttlæta þá.

„Ég hef margoft spurt sjálfa mig hvernig forsvarsmenn góðgerðasamtaka og háskóla réttlæti fyrir sér að starfsemin græði á spilakössum. Hvaða málefni telja þeir svo mikilvægt að engar aðrar leiðir séu færar og hvaða neyð er svo stór að rekstur spilakassa sé siðferðislega réttlætanleg? Lengi hefur verið vitað að eina fólkið sem spilar í þessum spilakössum eru spilafíklar sem misst hafa tökin og eru ekki að leggja góðgerðamálum lið af fúsum og frjálsum vilja, heldur eru þetta fíklar sem í raun eru að berjast fyrir lífi sínu og tilvist. Þeir vilja ekki vera þarna í margar klukkustundir á dag og mata spilakassana með öllu sínu lífsviðurværi.“

Alma spyr forsvarsmenn þeirra sem notfæra sér spilakassa margra spurninga. Hvernig formenn og forstjórar geti varið þá opinberlega,  afhverju enginn bendi á jákvæð áhrif spilakassa og hvort að notkun spilakassa sé ekki siðferðislega vafasöm.

„Hvað fær formenn og forstjóra þessara góðgerðamála til að birtast opinberlega og réttlæta þessa fjáröflun? Af hverju þurfa forsvarsmenn þessara stofnana yfir höfuð að réttlæta spilakassarekstur sinn? Ef skaðinn er enginn?

Af hverju mæta formenn þessara góðgerðasamtaka ekki með rannsóknir og kannanir uppi í erminni sem sýna fram á jákvæðar, heilsufarslega og samfélagslega bætandi áhrif þess að spila í spilakössum þeirra öllum stundum fyrir allt sem einstaklingurinn á?

Er ekki líka stórundarlegt að góðgerðasamtök, björgunarsveit og meðferðarstofnun séu með almannatengil í vinnu við að skrifa fréttir og svara fyrir slíka fjáröflun? Getum við ekki gert þá kröfu að góðgerðasamtök og háskóli stundi eingöngu fjáröflun sem ekki þarf réttlætingar við, sem er ekki í besta falli siðferðislega vafasöm?“

Hún segir að margir rökstyðji spilakassa með því að segja að einhvers staðar verði peningarnir að koma, þá spyr Alma hvort að fólk myndi sætta sig við að styrkja samtök sem myndu nota mansal, vændi eða vopnasölu til að fjármagna sig.

„Ýmsir, þar á meðal forsvarsmenn umræddra góðgerðasamtaka, beita iðulega fyrir sér þeim rökum að einhvers staðar frá þurfi peningarnir að koma. Hvers konar réttlæting er það? Ef þau rök eru tekin gild má réttlæta hvaða tegund fjáröflunar sem er. Værir þú tilbúinn að styrkja samtök sem öfluðu fjár með mansali, vopnasölu eða vændi? Af því einhvers staðar frá verða peningarnir að koma!

Við svona spurningu myndu þeir sem beita fyrir sig ofangreindum rökum gjarnan segja: “Já en, þetta er löglegt. Mansal, vopnasala og vændi eru það ekki”. Þá vil ég minna á að það sama gilti um fjárhættuspil þegar meint leyfi fyrir spilakössum var veitt Rauða krossinum, Landsbjörg, SÁÁ og Happdrætti Háskóla Íslands. Það er í raun enn svo, sbr. 183 gr. hegningarlaga sem leggur blátt bann við fjárhættuspilum og veðmálum. Leyfi sem góðgerðasamtökum þessum var veitt með lögum árið 1994 er fyrir rekstri söfnunarkassa og happdrættisvéla, ekki þeirri fjárhættuspilastarfsemi sem spilakassar eru. Þar og í umfjöllun um frumvarpið er lýst fjáröflun sem á lítið skylt við spilakassana sem starfræktir eru í dag Þú kannt að spyrja: “Hvað eru þá söfnunarkassar og happdrættisvélar?” Það er von þú spyrjir. Hingað til hefur enginn getað svarað þeirri spurningu.“

Að lokum segir Alma að almenningur hljóti að gera kröfu að fólk sé ekki svipt lífsgæðum í nafni góðgerðarmála.

„Peningum fylgir ábyrgð og þegar almenningur í landinu leggur til peninga til góðgerðamála hljótum við að gera þá kröfu að ekki sé verið að svipta fólk lífsgæðum, jafnvel lífinu sjálfu og að slík samtök séu ekki að skapa slíka eymd og skaða og sýnt hefur verið fram á að spilakassar eru valdir að.

Ert þú eða fyrirtæki sem þú ert í forsvari fyrir að styðja við slík góðgerðasamtök?

Eða vilt þú gera þá sjálfsögðu kröfu að góðgerðasamtökin sem þú styrkir standi undir nafni og stundi aðeins góðar gjörðir?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Elín Metta komin heim
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Tveimur samningsbrotamálum gegn Íslandi vísað til EFTA-dómstólsins

Tveimur samningsbrotamálum gegn Íslandi vísað til EFTA-dómstólsins
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Arna Magnea birtir hatursfull skilaboð frá þekktum einstaklingum

Arna Magnea birtir hatursfull skilaboð frá þekktum einstaklingum
Fréttir
Í gær

Bláskógabyggð sögð skaðabótaskyld

Bláskógabyggð sögð skaðabótaskyld
Fréttir
Í gær

Kristinn svarar pistli blaðamanns: „Ég var að biðja þessar ungu konur að færa fórn“

Kristinn svarar pistli blaðamanns: „Ég var að biðja þessar ungu konur að færa fórn“
Fréttir
Í gær

Umdeildur fyrirlesari á leið til Íslands – „Einn versti zíonistinn á netinu“

Umdeildur fyrirlesari á leið til Íslands – „Einn versti zíonistinn á netinu“
Fréttir
Í gær

Skítafýla skekur Skagamenn – „Það er eiginlega ekki hægt að lýsa því hvað þetta er ógeðsleg lykt“

Skítafýla skekur Skagamenn – „Það er eiginlega ekki hægt að lýsa því hvað þetta er ógeðsleg lykt“