fbpx
Sunnudagur 20.apríl 2025
Fréttir

Ekki rétt skilið að núverandi hömlur á landamærum verði í marga mánuði

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 20. ágúst 2020 14:20

Þórólfur Guðnason. Mynd: Fréttablaðið/Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir það vera mistúlkun á ummælum sínum að þær hertu aðgerðir sem gripið var til nýlega á landamærum vegna kórónuveirufaraldursins þurfi að vera í gildi næstu mánuði eða ár. Það sem hann átti við er að einhverjar aðgerðir á landamærum þurfi að vera í gangi um ókominn tíma. Núverandi fyrirkomulag yrði hins vegar fljótlega endurskoðað en það felur í sér að allir sem koma til landsins þurfa að fara í tvöfalda sýnatöku og 5-6 daga sóttkví.

Þetta kom fram á upplýsingafundi dagsins hjá Almannavörnum.

Tvö til fjögur innanlands smit hafa greinst daglega síðustu þrjá daga og tvö í gær. Ekki hafa greinst ný afbrigði af veirunni og eru öll smitin tengd við sömu hópsýkinguna. Hún hefur hins vegar dreift sér það víða um samfélagið að búast má við nokkrum smitum næstu daga. Hins vegar virðast sóttvarnayfirvöld hafa náð að koma böndum á veiruna og sífellt fleiri sem greinast eru í sóttkví.

Virk smit í landinu eru núna 117, einn er á spítala en er ekki á gjörgæslu. 439 eru í sóttkví.

Virkum innanlandssmitum fer fækkandi en smitum á landamærum hefur farið fjölgandi undanfarið. Rúmlega 2.000 sýni voru tekin í gær og greindist einn með virkt smit og þrír eru í bið. Veruleg fækkun á farþegum til landsins varð í gær.

Ennfremur kom fram í máli Þórólfs að stefnt er að því að slaka á hömlum hér innanlands á næstunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðmundur Ingi ver framhaldsskólafrumvarpið – „Ekki stendur til að hætta að líta til námsárangurs“

Guðmundur Ingi ver framhaldsskólafrumvarpið – „Ekki stendur til að hætta að líta til námsárangurs“