fbpx
Þriðjudagur 29.apríl 2025
Fréttir

Þröstur dæmdur í fangelsi fyrir hrottafulla nauðgun

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 2. júlí 2020 14:24

Samsett mynd: Héraðsdómur og Facebook-skjáskot

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þröstur Thorarensen, sem fæddur er árið 1991, var í morgun dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun. Dómurinn féll í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Ákæran var gefin út þann 2. apríl síðastliðinn en brotið átti sér stað í apríl árið 2016. Hafði hann samræði við konu þar sem hún lá sofandi  í rúmi sínu en hún gat ekki spornað við samræðinu vegna svefndrunga og ölvunar. Eftir að konan vaknaði beitti Þröstur hana ólögmætri nauðung og hafði samfarir við hana í endaþarm án samþykkis, meðal annars með því að halda henni fastri.

Í dómnum segir meðal annars:

„Þriðjudaginn 4. júní 2019 mætti brotaþoli á lögreglustöð og lagði fram kæru á hendur ákærða fyrir kynferðisbrot. Við það tækifæri gaf brotaþoli skýrslu hjá lögreglu. Í framburði brotaþola kom m.a. fram að brotaþoli hefði verið að hefja störf í nýrri vinnu. Hefði henni verið boðið að koma og sjá nýtt húsnæði að Dalshrauni í Hafnarfirði sem hefði verið ætlað undir starfsemi fyrirtækisins. Eftir að hafa skoðað húsnæðið hafi ýmsir af vinnustaðnum farið á veitingastað í Hafnarfirði þar sem allir hafi fengið sér áfengi að drekka.
Þegar nánast allir hafi verið farnir hafi brotaþoli verið eftir ásamt ákærða og B. Í samtali við þá tvo hafi brotaþoli komist að því að þeir ættu báðir um langan veg að fara heim. Hafi brotaþoli því boðið þeim að gista heima hjá sér um nóttina. B hafi ekki þegið það en það hafi ákærði gert. Þau hafi farið heim til brotaþola þar sem hún hafi búið um ákærða á sófa í stofu. Brotaþoli hafi síðan farið að sofa.
Hafi hún síðan vaknað við það að ákærði var að hafa við hana samræði um leggöng. Brotaþoli hafi beðið ákærða að hætta en hann ekki gert það heldur þvingað brotaþola til áframhaldandi kynferðismaka og m.a. haft samræði við hana um leggöng. Eftir að þessu lauk hafi brotaþoli sagt ákærða að fara. Brotaþola hafi liðið illa eftir þetta. Hafi hún ákveðið að reyna að lifa með þessum atburði og sótt sér ýmiss konar aðstoð, m.a. hjá sálfræðingum og geðlæknum.
Ákærði hafi höfðað vitnamál á hendur brotaþola vegna þessa máls og brotaþoli þá ákveðið að ekki væri hægt að lifa með þessu lengur og lagt fram kæru á hendur ákærða fyrir brotið. Ákærða hafi í desember 2017 ákveðið að tilkynna málið til lögreglu ef vera kynni að hún myndi síðar leggja fram kæru í málinu.“
Þröstur og brotaþolinn voru vinnufélagar og unnu áfram saman eftir brotið.
Þröstur neitaði sök og krafðist frávísunar málsins á þeim grundvelli að málsmeðferðin hefði verið ámælisverð. Hafi hann meðal annars ekki fengið réttar upplýsingar um tilefni skýrslutöku hjá lögreglunni, hafi honum ekki verið kynnt sakarefni með tilhlýðilegum hætti. Þessu mótmælti ákæruvaldið og benti á að Þresti hefði verið kynnt sakarefnið nægjanlega í yfirheyrslu þann 16. ágúst árið 2019.
Dómurinn taldi nægileg sönnunargögn vera fyrir sakfellingu á grundvelli trúverðugs framburðar brotaþola, framburðar vitna, vottorða lækna og geðlæknis og fleiru.
Var Þröstur dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi. Hann var einnig dæmdur til að greiða konunni 3 milljónir króna í miskabætur. Ennfremur þarf hann að greiða hátt á fjórðu milljón króna í sakarkostnað.

Sakaður um margskonar kynferðisbrot og áreitni

Í umræðum í lokuðum Facebook-hóp árið 2018 voru birtar margar ásakanir á hendur Þresti fyrir kynferðisbrot og áreitni, meðal annars gegn unglingsstúlkum. Rétt er að taka fram að þessar ásakanir eru ósannaðar.

Meðal þeirra sem tóku þátt í þessum umræðum var brotaþolinn í þessu máli. Þröstur kannaði réttarstöðu sína vegna þessara umræðna og höfðaði vitnamál á hendur brotaþolanum vegna ummæla hennar í hópnum. Ásakanirnar leiddu til þess að Þresti var sagt upp störfum.

 

Í dómnum segir um þetta:

„Spjall í lokuðum hóp hafi farið af stað þar sem ásakanir brotaþola á hendur ákærða hafi verið efnið. Hafi ákærða verið tjáð að hann gæti ekki verið áfram í þessari vinnu. Þetta hafi verið ömurlegt og hafi ákærði leitað til lögfræðings til að skoða hvað hann gæti gert til að rétta sinn hlut. Hann hafi höfðað vitnamál á hendur brotaþola í því skyni og í kjölfar þess hafi brotaþoli kært ákærða fyrir kynferðisbrot. Ákærði kvaðst ekki hafa brotið gegn brotaþola umrætt sinn. Hann hefði ekki beitt brotaþola nauðung.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Guðbrandur: „Í fram­hald­inu var kon­an svo niður­lægð með ýms­um fá­rán­leg­um spurn­ing­um“

Guðbrandur: „Í fram­hald­inu var kon­an svo niður­lægð með ýms­um fá­rán­leg­um spurn­ing­um“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Meint hópnauðgun á 16 ára stúlku hvorki á borði lögreglu né Landspítala

Meint hópnauðgun á 16 ára stúlku hvorki á borði lögreglu né Landspítala
Fréttir
Í gær

Segir virka í athugasemdum afvegaleiða umræðuna – „Hef ekki séð myndum af íslenskum nauðgurum dreift á skemmtistaði“

Segir virka í athugasemdum afvegaleiða umræðuna – „Hef ekki séð myndum af íslenskum nauðgurum dreift á skemmtistaði“
Fréttir
Í gær

Anna Kristín varpar ljósi á stöðuna í skúrnum: „Nema svo byrja þeir að stela hlut­un­um okk­ar þarna“

Anna Kristín varpar ljósi á stöðuna í skúrnum: „Nema svo byrja þeir að stela hlut­un­um okk­ar þarna“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þurfti að eyða stórfé í tannviðgerðir en fékk enga miskunn frá Skattinum

Þurfti að eyða stórfé í tannviðgerðir en fékk enga miskunn frá Skattinum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Getur mikil neysla á kjúklingakjöti verið krabbameinsvaldandi?

Getur mikil neysla á kjúklingakjöti verið krabbameinsvaldandi?