Blaðamanni DV var vísað frá aðalfundi SÁÁ sem mun hefjast klukkan 17:00 í dag. Blaðamaður fékk þau svör að þetta væri vegna sóttvarna og fleiri en 500 mættu ekki koma saman. Fáir voru þó mættir þegar blaðamann bar að garði.
Blaðamaðurinn mætti á Hilton Reykjavík Nordica-hótelið á Suðurlandsbraut, en þar fer aðalfundurinn fram. Við inngang fundarsalar var starfsmaður sem sá um að hleypa fólki inn á fundinn, þar kynnti blaðamaðurinn sig sem slíkan og var í kjölfarið tekin til hliðar á meðan að einhver gæti tekið ákvörun um hvort fjölmiðlafólk ætti að hafa aðgang að fundinum.
Blaðamaður fullyrðir að andrúmsloftið hafi verið rafmagnað. Starfsmaðurinn tilkynnti henni síðan þau skilaboð framkvæmdastjóra SÁÁ að blaðamönnum yrði ekki heimill aðgangur að fundinum vegna smitvarna. Fullyrt var að það ætti við um blaðamenn frá öllum miðlum. Þá segir blaðamaðurinn að þetta hafi komið ýmsum fundargestum á óvart og að augljóslega hafi umrædd ákvörðun ekki verið tilkynnt fyrirfram.
Fréttastjóri DV hafði samband við núverandi formann SÁÁ skömmu áður enn að áðurnefnt atvik átti sér stað til að spyrja um aðgang fjölmiðlafólks að fundinum en hann hafði áður fengið þær upplýsingar að fréttaljósmyndurum yrði óheimilt að vera á fundinum. Fréttastjóri vildi þá komast að því hvort sömu reglur giltu um blaðamenn. Formaður sagði bæði að blaðamenn mættu ekki koma á fundinn vegna sóttvarna, en nokkru síðar í samtalinu að erfitt væri að segja til um hvort að blaðamenn mættu mæta, í raun þyrfti öll stjórnin að taka ákvörðun um það.
SJÁ NÁNAR: Frambjóðandi til formanns SÁÁ: Hann vill ráða einn en ég vil dreifa valdinu
Líkt og DV hefur fjallað mikið um þá munu formannskosningar fara fram í kvöld. Einar Hermansson og Þórarinn Tyrfingsson sækjast eftir kjörinu, en mikil átök hafa verið í aðdraganda kosninganna.