Rétt áður en banaslysið varð á Kjalarnesi síðastliðinn sunnudag ræddu áhyggjufullir vegfarendur og íbúar á Kjalarnesi saman og vöruðu við flughála vegarkaflanum þar sem slysið átti sér stað. Í íbúahópnum „Færð og veður á Kjalarnesi“ skrifaði áhyggjufullur íbúi:
„Varúð nýja malbikið við vigtaplanið er STÓRhættulegt
Fljúgandi hált svona blautt, dauðagildra.“
Þetta var skrifað klukkan 14:33 á sunnudaginn en tilkynning um slysið barst Neyðarlínunni kl. 15:13, rétt eftir að slysið varð. Tveir létu lífið er mótorhjól lenti á húsbíl á vegarkafla á Vesturlandsvegi á milli Grundarhverfis og Hvalfjarðarganga, ökumaður og farþegi. Ökumaður annars mótorhjóls sem rann til og skall einnig á húsbílnum, á eftir hinu, slasaðist alvarlega. Vegarkaflinn var nýlagður og flugháll. Er hálkan rakin til þess að of mikið bik hafi verið í efninu sem lagt var á veginn. Það er þó ekki staðfest, málið er í rannsókn. Vegagerðin hefur lýst því yfir að hún beri endanlega ábyrgð í málinu þó að hálkan geti hafa verið tilkomin vegna mistaka hjá öðrum aðila. Verktakinn sem annaðist verkefnið er Loftorka en efnið í verkið kom frá Malbikunarstöðinni Höfða. Í Fréttablaðinu þriðjudaginn 30. júní er haft eftir framkvæmdastjóra Höfða að efnið hafi verið afgreitt rétt í samræmi við óskir Loftorku.
Sláandi og óhugnanlegt er að lesa ummæli Kjalarnessbúa og vegfarenda í ljósi tímasetningarinnar. Innlegginu sem greinir frá hér að ofan svarar kona ein svo:
„Mæli með því að allir sem nota þennan veg geri athugasemdir beint til Vegagerðarinnar á vegagerdin@vegagerdin.is“
Önnur kona skrifar:
„Tek undir þetta, STÓRHÆTTULEGT – í rigningunni á föstudag hélt ég að ég væri að missa dekk undan bílnum þegar hann fór að rása svona mikið. Stoppaði einmitt við vigtarplanið til að athuga með það og gerði mér þá grein fyrir hversu hættulegur vegurinn er í rigningu.“
Umræðurnar teygja sig inn í slysatímann og maður einn skrifar:
„Úff, ég ætla að vona að bílslysið núna áðan hafi ekki gerst út af þessu“
Annar maður skrifar:
„Þetta malbik er dauðagildra. Bíllinn skautar endalaust á þessu og missir allt grip. Hræðilegt alveg hreint. Hvað þurfa margir að deyja svo að þetta verði lagað!“
Síðustu ummælin sem við birtum skrifaði kona ein sem komst í hann krappan á þessum vegarkafla skömmu fyrir slysið, þó að hún væri á hægum hraða:
„Ég keyrði yfir þennan kafla áðan í þurru og bíllinn skautaði, fór svo aftur yfir hann til baka kl. 14 oo þá var komin rigning og oh my lord! Hafði nánast enga stjórn á bílnum þótt ég væri komin niður í 50 og mátti hafa mig alla við að missa hann ekki útaf eða yfir á hinn vegarhelminginn. Þetta verður að laga strax! Dauðagildra!“