Mál héraðssaksóknara gegn Rocio Bertu Calvi Lozano og eiginmanni hennar var þinfest í héraðsdómi í dag. Lögmaður Rocio, Sigurður G. Guðjónsson segir málið afar umfangsmikið og uppspuna frá rótum. Þetta kom fram í frétt mbl.is af málinu.
Meint brot Rocio hafa vakið töluverða athygli, en henni er gefið af sök að hafa svikið tugi milljóna frá heilabiluðum systrum á tíræðisaldri. Rocio kynntist annari systurinni á vegum bandaríska sendiráðsins á Íslandi, þar sem sú síðarnefnda starfaði. Vinskapurinn er í ákæru rakinn allt aftur til 2005, en gæti þó verið lengri. Á árinu 2012 fékk Rocio umboð frá systrunum 2012 til að sjá um fjármál þeirra og var umboðið útbúið af lögmanni sem sömuleiðis vottaði skjalið. Það var á grundvelli þessa umboðs sem Rocio fékk gefin út debetkort sem tengd voru við bankareikninga í eigu systranna.
Við þingfestingu neituðu Rocio og eiginmaður hennar sök og höfnuðu bótakröfu. Aðalmeðferð mun fara fram 30. september. Samkvæmt heimildum DV mun ýmislegt koma fram undir rekstri málsins sem máli aðra mynd af málsatvikum heldur en þá sviðsmynd sem ákæra sýnir.
Sjá einnig: Meintur fjársvikari í einu grófasta fjársvikamáli Íslands neitar sök