Matthías Jón Karlsson sem var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í Bitcoin-málinu svokallaða er grunaður um mikla framleiðslu á ólöglegum fíkniefnum. Maðurinn situr nú í gæsluvarðhaldi vegna málsins, en um er að ræða ellefu kíló af amfetamíni. Þetta kemur fram í kvöldfréttum RÚV, en lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greindi einnig frá málinu í dag.
Matthías var einn þriggja, sem voru sendir í tveggja vikna gæsluvarðhald vegna málsins í gær. Hinir tveir voru Litháar.
Fíkniefnin fundust samkvæmt heimildum RÚV í Grýtubakka í Reykjavík. Lögreglan lagði einnig hald á búnað, sem hefur verið notaður við framleiðsluna, auk og fjármuna. Nokkrar húsleitir voru framkvæmdar vegna málsins. Söluvirði fíkniefnanna er talið vera um sjötíu milljónir króna.
Matthías Jón Karlsson var einn sjö manna sem fengu dóm í Bitcoin-málinu í fyrra, en hann hlaut næst þyngsta dóminn. Bitcoin-málið svokallaða snéri skipulögðu ráni í gagnaver í Reykjanesbæ og í Borgarnesi í desember í 2019. Í innbrotunum var tölvubúnaði fyrir 42,5 milljónir króna stolið en tjónið af völdum innbrotanna er metið á 78 milljónir króna.